BOAZOJAHKI og kynning á nýrri jöklasýningu
Boazojahki er samíska og þýðir ár með hreindýrum, en n.k. laugardag opnar sýning með þessu nafni í húsnæði Jöklasýningarinnar, Hafnarbraut 30 (gamla Vöruhúsinu) Þetta er sýning á ljósmyndum Trym Ivars Bergsmo frá Noregi, sem í þrjú ár fylgdi Sama fjölskyldu og skráði hversdags líf þeirra, sem hreindýrabænda. Frá barnæsku hefur ljósmyndarinn verið bergnuminn af víðerni Finnmerkur, samskiptum við Sama, hreindýrunum og landslaginu. Af framandi tungumálinu, sérstökum söng þeirra joik, dýrunum, tjöldum þeirra lavvo, fatnaði, haustlitunum, háum himni og endalausri víðáttu. Þetta eru heillandi myndir sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Trim er þekktur ljósmyndari í Noregi, hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og sýnt víða í Evrópu. Hann vinnur gjarnan í samstarfi við aðrar listgreinar og hefur m.a. nokkrum sinnum unnið með verðlaunahöfundinum Lars Saabye Christensen. Sýningin er samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvarinnar, Safnastofnunar Fjarðabyggðar, Náttúrustofu Austurlands og Menningarnefndar Fljótsdalshéraðs. Sýningin verður sett upp í Fjarðabyggð í apríl og á Fljótsdalshéraði í maí.
Auk ljósmyndasýningarinnar er ýmislegt fleira í boði á Höfn um páskana. Samhliða ljósmyndasýningunni verður hægt að skoða fatnað úr hreindýraskinni eftir Signýju Ormarsdóttur og hreindýrafeld. Þá verður Menningarmiðstöðin með bókamarkað í Vöruhúsinu þar sem hægt er að gramsa og gera góð kaup. Síðast en ekki síst þá viljum við hvetja heimamenn og gesti til að koma og kynna sér teikningar af nýrri metnaðarfullri Jöklasýningu sem einnig verða til sýnis á staðnum.
Sýningarnar að Hafnarbraut 30 opna laugardaginn 19. mars kl. 14. Það eru allir velkomnir og aðgangur er ókeypis. Sýningarnar og bókamarkaðurinn verða opnar helgina 19. til 20. mars og um páskana 24. til 28. mars, alla daganna kl. 14 til 18
Páskadaganna 24. til 28. mars verður einnig opið í Gömlubúð kl. 14 til 18 og aðgangur einnig ókeypis. Auk muna í eigu safnsins hefur þar verið sett upp áhugaverð safnarasýning.



