Menning
Judas
Judas
Leikarar: Neðri röð frá vinstri Aino Elina Raiskila, Nanna Halldóra Imsland, Ingi Steinn Þorsteinsson, Sara Eik Sigurgeirsdóttir, Goran Basrak, í miðröð Þórður Ingvarsson og Ágúst Elvarsson, efsta röð Chiharu Kawai, Emil Örn Morávek Jóhannsson, Elvar Bragi Kristjónsson og Sigfinnur Mar Þrúðmarsson.
Mynd 2 af 2
1 2

11.03.2005

Júdas er kona

Hafnar eru á Hornafirði æfingar á söngleiknum Jesus Christ Superstar eftir þá Andrew Lloyd Webber og Tim Rice í þýðingu Hannesar Arnar Blandon og Emelíu Baldursdóttur. Um er að ræða samvinnuverkefni FAS (Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu), Leikfélags Hornafjarðar og Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Leikstjórinn er Gunnar Sigurðsson. Gert er ráð fyrir að frumsýnt verði laugardaginn 16. apríl. Það sem er sérstakt við þessa uppsetningu er að Júdas er kona, en að sögn leikstjórans eru konur gjarnan meiri áhrifavaldar en virðist á yfirborðinu.

Ljóst er að strangar æfingar og mikil vinna er fram undan en þegar mikill áhugi og metnaður fara saman þá verður uppskeran ríkuleg.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica