Menning

Sigurdur-Einarsson-malverk

Málverkasýning í Pakkhúsinu um helgina - 25.03.2005 Menning

Nýlega gaf Sigurður Menningarmiðstöð Hornafjarðar málverkasafn sitt, alls 298 málverk af ýmsum stærðum og gerðum. Í Pakkhúsinu um páskahelgina hefur verið sett upp lítil sýning á 20 af þessum verkum. Sigurður er Mýramaður, fæddur 1918, ættaður frá Holtum og Einholti. Hann hefur lengst af búið á Selfossi ásamt konu sinni Sigríði Bjarnadóttur frá Hólabrekku á Mýrum. Sigurður vann jafnt til sjós og lands en lengst af við Mjólkurbú Flóamanna eða í 25 ár. Þau hjónin eignuðust 11 börn sem öll eru á lífi. Sigurður er nýlega fluttur í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Hveragerði. Áhuginn á myndlistinni kviknaði þegar abstrakt-málverkið kom fram á sjónarsviðið. Þá fór Sigurður að sækja myndlistarsýningar og þar hefur hann eflaust safnað ýmsu í sarpinn. Hann fylgdist líka með samtímalistinni og sjálfur segist hann hafa gengið rækilega í sarp hjá Gunnari Erni, nú búsettum að Kambi í Rangárvallasýslu. Lesa meira
 
Á safnadögum (@BA)

Margt merkilegt að skoða á safnadögum yfir páskana - 24.03.2005 Menning

Safnadagar verða í Menningarmiðstöð Hornafjarðar yfir páskana og verða söfnin opnuð í dag kl 14 .00. Söfnin verða opin alla dagana frá kl.14 til 18. Í Gömlubúð verður mikið um að vera, þar verða margir fágætir og merkilegir gripir sem eru í einkaeign sýndir. Leitað hefur verið til safnara á svæðinu um að sýna söfn sín í Gömlu búð og hafa margir orðið við þeim tilmælum og verða þar t.d. skeiðasafn, mynt- og seðlasafn, frímerkja-og kveikjarasafn, fuglar, könnur, pennasöfn o.m.fl. Þá má minna á stórt og merkilegt fugla og eggjasafn í Gömlubúð og tilvalið að sýna börnunum það nú þegar vorið fer að nálgast og farfuglarnir að koma. Lesa meira
 
BOAZOJAHKI og kynning á nýrri jöklasýningu

BOAZOJAHKI og kynning á nýrri jöklasýningu - 15.03.2005 Fréttir

Boazojahki er samíska og þýðir ár með hreindýrum, en n.k. laugardag opnar sýning með þessu nafni í húsnæði Jöklasýningarinnar, Hafnarbraut 30 (gamla Vöruhúsinu) Þetta er sýning á ljósmyndum Trym Ivars Bergsmo frá Noregi, sem í þrjú ár fylgdi Sama fjölskyldu og skráði hversdags líf þeirra, sem hreindýrabænda. Frá barnæsku hefur ljósmyndarinn verið bergnuminn af víðerni Finnmerkur, samskiptum við Sama, hreindýrunum og landslaginu. Af framandi tungumálinu, sérstökum söng þeirra joik, dýrunum, tjöldum þeirra lavvo, fatnaði, haustlitunum, háum himni og endalausri víðáttu. Þetta eru heillandi myndir sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Lesa meira
 
Judas

Júdas er kona - 11.03.2005 Menning

Hafnar eru á Hornafirði æfingar á söngleiknum Jesus Christ Superstar eftir þá Andrew Lloyd Webber og Tim Rice í þýðingu Hannesar Arnar Blandon og Emelíu Baldursdóttur. Um er að ræða samvinnuverkefni FAS (Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu), Leikfélags Hornafjarðar og Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Leikstjórinn er Gunnar Sigurðsson. Gert er ráð fyrir að frumsýnt verði laugardaginn 16. apríl. Það sem er sérstakt við þessa uppsetningu er að Júdas er kona, en að sögn leikstjórans eru konur gjarnan meiri áhrifavaldar en virðist á yfirborðinu. |nl| |nl|Ljóst er að strangar æfingar og mikil vinna er fram undan en þegar mikill áhugi og metnaður fara saman þá verður uppskeran ríkuleg. Lesa meira
 
Frá afhendingu menningar- og umhverfisverðlauna

Úthlutun styrkja og tilnefningar menningar- og umhverfisverðlauna - 07.03.2005 Menning

Menningar- og umhverfisverðlaun Hornafjarðar voru veitt og afhent sl. föstudag. Menningarverðlaunin í ár hlaut Gísli Sverrir Árnason fyrir öflugt og farsælt starf við uppbyggingu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og uppbyggingu menningarmála á Austurlandi og á landinu öllu með formennsku sinni í Menningarráði Austurlands og í stjórn Safnaráðs. Umhverfisverðlaunin hlaut Elín Sigríður Harðardóttir fyrir langt og farsælt starf að umhverfismálum í sveitarfélaginu. Lesa meira
 
Rúna og Gísli í Æfintýri á gönguför

Auglýsing um verkefnastyrki til menningarstarfs - 02.03.2005 Menning

Menningarráð Austurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi og Menntamálaráðuneytisins um menningarmál. Veita á styrki til menningarstarfs á Austurlandi. Ein úthlutun verður árið 2005, í apríl. Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Austurlandi geta sótt um styrk til margvíslegra menningarverkefna, en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Áherslur við úthlutun 2005 verða; atvinnusköpun á sviði lista, samstarf og efling liststarfsemi ungs fólks. Umsóknarfrestur er til og með 31mars. Ætlunin er að tilkynna um úthlutun um miðjan apríl. ( með fyrirvara um breytingar ). Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Austurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðunni www.skriduklaustur.is/menning. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica