Menning
Hvar.is
hvar.is
Vefurinn hvar.is er þjónustuvefur fyrir landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum

19.01.2005

Þjónustuvefur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum

Hvar.is og Menningarmiðstöð Hornafjarðar ætla að bjóða upp á kynningu á landsaðganginum fimmtudaginn 20. jan. í fyrirlestrasal Nýheima á vefnum hvar.is sem er þjónustuvefur fyrir landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Kynning fyrir kennara og nemendur Fas ásamt öðru starfsfólki Nýheima verður fyrir hádegi, kennarar á grunn- og leikskólastigi ásamt, fjarnemum, heilsugæslu og stjórnsýslu fá kynningu eftir hádegi. Almenn kynning fyrir bæjarbúa verður í hádeginu frá kl. 12.30 ? 13.00 ?Allir á Íslandi sem tengjast Netinu um íslenskar netveitur hafa aðgang að rafrænu gagnasöfnunum allan sólarhringinn, alla daga vikunnar, allt árið um kring.

Fræðimenn, skólafólk og almenningur hafa not af landsaðganginum en þar er að finna efni um; Dægradvöl, félagsvísindi, fjármál og viðskipti, heimspeki og hugvísindi, íþróttir og leiki, læknisfræði og heilbrigðismál, menningu og listir, tækni og vísindi og annað til fróðleiks og skemmtunar. Þar er að finna 30 gagnasöfn, yfir 8000 tímarit, 350.000 bókmenntaverk, 3 alfræðisöfn og orðabækur.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica