Menning

Hvar.is

Þjónustuvefur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum - 19.01.2005 Menning

Hvar.is og Menningarmiðstöð Hornafjarðar ætla að bjóða upp á kynningu á landsaðganginum fimmtudaginn 20. jan. í fyrirlestrasal Nýheima á vefnum hvar.is sem er þjónustuvefur fyrir landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Kynning fyrir kennara og nemendur Fas ásamt öðru starfsfólki Nýheima verður fyrir hádegi, kennarar á grunn- og leikskólastigi ásamt, fjarnemum, heilsugæslu og stjórnsýslu fá kynningu eftir hádegi. Almenn kynning fyrir bæjarbúa verður í hádeginu frá kl. 12.30 – 13.00 “Allir á Íslandi sem tengjast Netinu um íslenskar netveitur hafa aðgang að rafrænu gagnasöfnunum allan sólarhringinn, alla daga vikunnar, allt árið um kring. Lesa meira
 

Menningarverðlaun Hornafjarðar fyrir árið 2004 - 10.01.2005 Menning

Undanfarið hefur Menningarmálanefnd Hornafjarðar auglýst eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Hornafjarðar fyrir árið 2004. Í reglum um verðlaunin segir: Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári. Hlutverk verðlaunanna er einnig að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í sveitarfélaginu. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica