Menning
Hulda Rós
Hulda Rós
Hulda Rós Sigurðardóttir söngkona @SMH

17.12.2004

Tónlistarhelgi fer í hönd

Það er sannkölluð tónlistarhelgi framundan því margir tónlistarviðburðir eru á dagskrá um helgina á Höfn. Í dag kl. 17:30 verða jólatónleikar Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu í Hafnarkirkju. Fram koma nemendur skólans með fjölbreytt efni og jólalögin verða í fyrirrúmi. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Á laugardagskvöld verða léttir tónleikar og ljúf jólastemning sem kemur öllum í jólaskapið á Hótel Höfn. Hulda Rós syngur jólalög, djassstandarda og önnur þekkt lög við undirleik Heiðars Sigurðssonar. Tónleikarnir hefjast kl. 21:30 og aðgangseyrir er 500 krónur.

Á sunnudaginn verða hinir árlegu jólatónleikar karlakórsins Jökuls í Hafnarkirkju. Fram koma Kvennakór Hornafjarðar, Samkór Hornafjarðar, Gleðigjafar, Lúðrasveit Hornafjarðar og nemendur úr Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Allur ágóði af tónleikunum rennur til Margrétar Andrésdóttur.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica