Menning

Hulda Rós

Tónlistarhelgi fer í hönd - 17.12.2004 Menning

Það er sannkölluð tónlistarhelgi framundan því margir tónlistarviðburðir eru á dagskrá um helgina á Höfn. Í dag kl. 17:30 verða jólatónleikar Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu í Hafnarkirkju. Fram koma nemendur skólans með fjölbreytt efni og jólalögin verða í fyrirrúmi. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. |nl|Á laugardagskvöld verða léttir tónleikar og ljúf jólastemning sem kemur öllum í jólaskapið á Hótel Höfn. Hulda Rós syngur jólalög, djassstandarda og önnur þekkt lög við undirleik Heiðars Sigurðssonar. Tónleikarnir hefjast kl. 21:30 og aðgangseyrir er 500 krónur. Lesa meira
 
Jólatónleikar Unga Fólksins

Sannkölluð jólastemning og góð tónlist í Nýheimum, - 15.12.2004 Menning

Jólatónleikar unga fólksins verða haldnir í Nýheimum annað kvöld Dagskráin samanstendur af fjölbreyttri jólatónlist fluttri af ungum hornfirskum tónlistarmönnum. Tónleikarnir voru fyrst haldnir í fyrra og tókust vel. Þá fluttu ýmsir tónlistarmenn atriði fyrir fullum sal í Nýheimum. Það má því sannarlega búast við skemmtilegri dagskrá í kvöld og ekki síðri en í fyrra. Þeir sem koma fram eru meðal annars hljómsveitin Aghmed og stúlknabandið Bleikar skóreimar, Parketmeðlimirnir Stjáni og Röggi, trúbadorarnir Eysteinn og Ingi Steinn, söngkonurnar Hulda Rós og Sigríður Bára, sigurvegari söngvakeppni Þrykkjunnar Ragnar Ægir Fjölnisson og Birgir Fannar Reynisson sem er jafnframt kynnir kvöldsins ásamt Elvu Dröfn Sigurjónsdóttur. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica