Romeo och Juliakören frá Svíþjóð halda tónleika í Hafnarkirkju
Næstkomandi fimmtudagskvöld mun verða mikill menningarviðburður á Hornafirði en þá munu Romeo och Juliakören frá Svíþjóð halda tónleika í Hafnarkirkju. Í kórnum er óvenju fjölhæft fólk, þau eru leikarar og dansarar auk þess sem þau leika öll á hljóðfæri. Þetta verða því tónleikar sem eru ólíkir þeim sem við eigum að venjast á Hornafirði og fengur fyrir okkur að fá þau í heimsókn. Kórinn starfar í tengslum við Dramaten sem er þekkt leikhús í Stokkhólmi. Það er Samkór Hornafjarðar sem tekur á móti þeim og skipuleggur dvöl þeirra hér. Þau halda tónleika í Reykjavík 6. og 7. nóv. með Háskólakórnum, sem Hákon Leifsson stjórnar.
Tónleikarnir hefjast í Hafnarkirkju fimmtudagskvöldið 4. nóvember kl.20 og er aðgangseyrir kr.1000.-



