Menning

Pakkhúsið séð frá bryggju

Árlegt jóla-bókmenntakvöld í Pakkhúsinu - 30.11.2004 Menning

Næstkomandi fimmtudagskvöld, 2.des. verður hin árlega bókmenntasamkoma sem haldin er í desember á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Samkoman verður í Pakkhúsinu og hefst kl.20. Þeir rithöfundar sem þar verða og lesa úr verkum sínum verða: Auður Ólafsdóttir sem les úr bók sinni Rigning í nóvember, Haukur Ingvarsson les úr bók sinni Niðurfall og þættir af hinum dularfulla Manga, Helgi Björnsson, ritstjóri les úr bókinni Jöklaveröld, en Egill Jónsson á Seljavöllum og Sveinn Runólfsson eru einnig í ritnefnd., Margrét Lóa Jónsdóttir les úr bók sinni Laufskálafuglinn, Sigfús Bjartmarsson les úr bók sinni Andræði, Þorvaldur Þorsteinsson les úr bók sinni Blíðfinnur og svörtu teningarnir. Hulda Rós og Heiðar flytja jólalög og nokkrir nemendur Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu munu einnig flytja tónlist á milli upplestra. Lesa meira
 
MMH_ Sameiginlegur fundur menningarmálanefnda

Sameiginlegur fundur menningarmálanefndar Hornafjarðar og Djúpavogs í Löngubúð á Djúpavogi - 11.11.2004 Menning

Í gær héldu menningarmálanefnd Hornafjarðar og menningarmálanefnd Djúpavogs sameiginlegan fund í Löngubúð á Djúpavogi. Tilefni fundarins var að treysta tengsl á milli þessara aðila og ræða ýmis samstarfsverkefni sem til greina kemur að vinna að. Fundinn sátu Hermann Hansson, Bryndís Hólmarsdóttir, Guðlaug Hestnes og Ágústína Halldórsdóttir úr menningarmálanefnd Hornafjarðar auk Gísla Sverris Árnasonar forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Hjalta Þórs Vignissonar framkvæmdastjóra stjórnsýslusvips Hornafjarðar. Fulltrúar Djúpavogs voru Hrönn Jónsdóttir, Berglind Einarsdóttir, Erla Ingimundardóttir og Nína Jónsdóttir úr menningarmálanefnd Djúpavogs auk Björns Hafþórs Guðmundssonar sveitarstjóra Djúpavogshrepps. Lesa meira
 
Romeo och Juliakören

Hætt við tónleika Romeo och Juliakören - 03.11.2004 Menning

Hætt er við fyrirhugaða tónleika með Romeo och Juliakören sem vera áttu í Hafnarkirkju fimmtudagskvöldið. Hópurinn hætti við að koma til Hornafjarðar vegna eldgossins og ótryggs ástands á vegi um sandinn. Ekki var talið rétt að taka þá áhættu að hópurinn myndi lokast hér inni, þar sem þau eiga einnig að halda tónleika í Reykjavík n.k. laugardag kl. 3 og hafa verið að æfa fyrir þá ásamt Háskólakórnum. Því venda þau kvæði sínu í kross og fara í Skagafjörð. Líkleg er einnig að hópurinn þurfi að fresta tónleikum sem halda átti á Norðurland. Lesa meira
 
Wijnen, Winter & Thor

Wijnen, Winter Thor með tónleika á Hótel Höfn - 03.11.2004 Menning

Tónleikar í tilefni nýrrar plötu frá Hollensk/Íslenska Jazztríóinu Wijnen, Winter & Thor verða haldnir á Hótel Höfn sunnudagskvöldið 7. nóvember. Tríóið skipa þeir Andrés Þór gítarleikari, Bob Wijnen sem leikur á Hammond orgel og trommarinn Rene Winter. Skemmtileg blanda af jazzi og fönki og ýmsu þar á milli. Tríóið hefur verið starfandi síðan sumarið 2002 og hafa þeir félagar leikið saman víðsvegar í Hollandi á undanförnum árum auk þess að hafa komið til Íslands til að troða upp og nú síðast á Jazzhátíð Reykjavíkur veturinn 2003 við góðar undirtektir. Leikur hefst klukkan 21:00. Tónleikar sem enginn má missa af. Lesa meira
 
Listaverk eftir Margréti Jónsdóttur

Handverk og hönnun 1994 - 2004 - 03.11.2004 Menning

Laugardaginn 6. nóvember verður 10 ára afmælissýning HANDVERKS OG HÖNNUNAR opnuð í Pakkhúsinu, Höfn í Hornafirði. Afmælissýningin er haldin í tilefni þess að verkefnið er tíu ára um þessar mundir. Valnefnd var skipuð til að velja sýnendur á þessa sýningu. Markmiðið með sýningunni er varpa sýn á stöðu handverks, listiðnaðar og hönnunar á Íslandi í dag. Nefndina skipuðu Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Eyjólfur Pálsson hönnuður og Guðný Magnúsdóttir leirlistamaður. Á sýningunni er bæði hefðbundinn listiðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni. Sýningin var fyrst sett upp í Reykjavík, svo í Listasafni Árnesinga, Hveragerði, þá í Norska húsinu, Stykkishólmi, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ, í Ketilhúsinu á Akureyri og að Skriðuklaustri. Sýningarferðalaginu mun nú ljúka í Pakkhúsinu Höfn í Hornafirði. Vegleg sýningarskrá er gefin út að þessu tilefni. Lesa meira
 
Romeo och Juliakören

Romeo och Juliakören frá Svíþjóð halda tónleika í Hafnarkirkju - 01.11.2004 Menning

Næstkomandi fimmtudagskvöld mun verða mikill menningarviðburður á Hornafirði en þá munu Romeo och Juliakören frá Svíþjóð halda tónleika í Hafnarkirkju. Í kórnum er óvenju fjölhæft fólk, þau eru leikarar og dansarar auk þess sem þau leika öll á hljóðfæri. Þetta verða því tónleikar sem eru ólíkir þeim sem við eigum að venjast á Hornafirði og fengur fyrir okkur að fá þau í heimsókn. Kórinn starfar í tengslum við Dramaten sem er þekkt leikhús í Stokkhólmi. Það er Samkór Hornafjarðar sem tekur á móti þeim og skipuleggur dvöl þeirra hér. Þau halda tónleika í Reykjavík 6. og 7. nóv. með Háskólakórnum, sem Hákon Leifsson stjórnar. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica