Menning
Málverk Sigurðar Einarssonar
Málverk Sigurðar Einarssonar
Almannaskarð, eitt af málverkunum sem Sigurðar Einarssonar gaf Menningarmiðstöð Hornafjarðar.

29.10.2004

Sigurður Einarsson gaf Menningarmiðstöð 298 málverk

Menningarmiðstöð Hornafjarðar barst nýlega að gjöf málverkasafn Sigurðar Einarssonar sem ættaður er af Mýrunum. Þetta eru 298 málverk af öllum stærðum og gerðum,fantasíur, apstrakt, landslagsmyndir og bara allskonar myndir sagði Guðný Svavarsdóttir safnvörður en hún fór ásamt Birni Arnarsyni safnverð til Reykjavíkur að veita gjöfinni viðtöku og flytja hana til heim. Mikið af myndunum er innrammað og tilbúnar til hengja þær upp en það verður líklega ekki strax því til þess vantar safnið pláss og svo er einnig um fleiri verk í eigu safnsins s.s. myndir Svavars Guðnasonar. Sigurður er mýramaður í húð og hár, ættaður frá Holtum og Einholti en hefur lengst af búið á Selfossi ásamt konu sinni Sigríði Bjarnadóttur frá Hólabrekku á Mýrum.

Sigurður byrjaði ekki að mála fyrr en á efri árum, þegar hann var að mestu hættur vinnu. Hann var hvattur af ýmsum til að halda því áfram, m.a. af listfræðingi, sem fannst hann hafa einhverja hæfileika. Sigurður hefur haldið nokkrar sýningar m.a. tvisvar hér á Hornafirði. Um þessar mundir er sýning á verkum hans í Gerðubergi í Reykjavík. Hann vill láta kalla sig ?alþýðulistamann?.
Gamli maðurinn hefur verið mjög afkastamikill eftir að hann helgaði sig listinni. hann átti fulla geymslukompu af myndum sem hann hefur nú gefið Hornfirðingum. Hann vildi vita af þeim á ?viðkunnanlegum? stað eftir sinn dag. Sigurður er nú fluttur í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Hveragerði.

Heimildir um Sigurð eru fengnar hjá Sigurði Hannessyni Menningarmiðstöðinni.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica