Bangsadagurinn haldinn hátíðlegur á Höfn
Síðan 1998 hafa bókasöfn á Norðurlöndum haldið Bangsadaginn hátíðlegan. Það er einkar viðeigandi að tengja bangsa og bókasöfn á þennan hátt því bangsar eru söguhetjur margra vinsælla barnabóka. Auk þess eru bangsar eitt vinsælasta leikfang sem framleitt hefur verið og flestir eiga góðar minningar tengdar uppáhalds bangsanum sínum. Einnig eru bangsar tákn öryggis og vellíðunar í huga okkar á sama hátt og bækur og bókasöfn eru vonandi. Sögustundin ,sem er einu sinni í bókasafni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar var að þessu sinni tileinkuð alþjóðlega bangsadeginum, sem var reyndar í gær, og var öllum ungum sem öldnum boðið að koma þangað með bangsana sína. Ragnhildur Guðmundsdóttir sem hefur í mörg ár séð um sögustundina sagði að alltof fáir fullorðnir mætt með sína gömlu góðu bangsa. Snæfríður Svavarsdóttir leikskóla stjóri mætti með sinn gamla bangsa og sagði börnunum sögur af sér og bangsanum sínum. Þetta hefðu fleiri mátt gera sagði Ragnhildur og hún vonar að fleiri fari að dæmi Snæfríðar á næsta bangsadegi.
Ragnhildur segir að góð aðsókn sé að sögustundinni og hafi verið frá byrjun. Þessi samverustund er ætluð börnum frá þriggja til sex ára og koma venjulega 15?20 börn. Meðan kennaraverkfallið hefur staðið haf a eldri börn komið, það eru börn sem vön voru að koma meðan þau voru yngri.
Dagurinn sem bangsavinir hafa valið sér er 27. október, afmælisdagur Theodore(Teddy) Roosevelt fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Roosevelt var mikill skotveiðimaður og sagan segir að eitt sinn þegar hann var á bjarnarveiðum hafi hann vorkennt litlum, varnarlausum bjarnarhúni og sleppt honum lausum. Washington Post birti skopmynd af þessu atviki sem vakti mikla athygli. Búðareigandi einn í Brooklyn, New York varð svo hrifinn af þessari sögu að hann bjó til leikfangabangsa sem hann seldi sem "Bangsann hans Teddy" (Teddy's Bear). Það má segja að þetta hafi verið upphaf af sigurgöngu leikfangabangsans sem er orðinn vinsæll félagi barna (og fullorðinna) um allan heim.


