Menning

Málverk Sigurðar Einarssonar

Sigurður Einarsson gaf Menningarmiðstöð 298 málverk - 29.10.2004 Menning

Menningarmiðstöð Hornafjarðar barst nýlega að gjöf málverkasafn Sigurðar Einarssonar sem ættaður er af Mýrunum. Þetta eru 298 málverk af öllum stærðum og gerðum,fantasíur, apstrakt, landslagsmyndir og bara allskonar myndir sagði Guðný Svavarsdóttir safnvörður en hún fór ásamt Birni Arnarsyni safnverð til Reykjavíkur að veita gjöfinni viðtöku og flytja hana til heim. Mikið af myndunum er innrammað og tilbúnar til hengja þær upp en það verður líklega ekki strax því til þess vantar safnið pláss og svo er einnig um fleiri verk í eigu safnsins s.s. myndir Svavars Guðnasonar. Sigurður er mýramaður í húð og hár, ættaður frá Holtum og Einholti en hefur lengst af búið á Selfossi ásamt konu sinni Sigríði Bjarnadóttur frá Hólabrekku á Mýrum. Lesa meira
 
Bangsadagurí Menningarmiðstöð

Bangsadagurinn haldinn hátíðlegur á Höfn - 28.10.2004 Menning

Síðan 1998 hafa bókasöfn á Norðurlöndum haldið Bangsadaginn hátíðlegan. Það er einkar viðeigandi að tengja bangsa og bókasöfn á þennan hátt því bangsar eru söguhetjur margra vinsælla barnabóka. Auk þess eru bangsar eitt vinsælasta leikfang sem framleitt hefur verið og flestir eiga góðar minningar tengdar uppáhalds bangsanum sínum. Einnig eru bangsar tákn öryggis og vellíðunar í huga okkar á sama hátt og bækur og bókasöfn eru vonandi. Sögustundin ,sem er einu sinni í bókasafni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar var að þessu sinni tileinkuð alþjóðlega bangsadeginum, sem var reyndar í gær, og var öllum ungum sem öldnum boðið að koma þangað með bangsana sína. Ragnhildur Guðmundsdóttir sem hefur í mörg ár séð um sögustundina sagði að alltof fáir fullorðnir mætt með sína gömlu góðu bangsa. Snæfríður Svavarsdóttir leikskóla stjóri mætti með sinn gamla bangsa og sagði börnunum sögur af sér og bangsanum sínum. Þetta hefðu fleiri mátt gera sagði Ragnhildur og hún vonar að fleiri fari að dæmi Snæfríðar á næsta bangsadegi. Lesa meira
 
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir píanóleikari og Þórunn Elín Pétursdóttir sópran

Tónleikar í Nýheimum - 05.10.2004 Menning

Næstkomandi laugardag verða tónleikar á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í Nýheimum, að þessu sinni eru það Þórunn Elín Pétursdóttir sópran og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir píanóleikari sem heiðara okkur Hornfirðinga. Á efnisskránni eru tónverk eftir fjölmörg þekkt tónskáld sem eru Atli Heimir Sveinsson, Sigfús Einarsson, Sigvaldi Kaldalóns, Páll Ísólfsson, Jón Ásgeirsson, Georg Friedrich Händel, Johann Sebastian Bach og Charles Gounod, Wolfgang Amadeus Mozart, Rudolf Sieczynski og Johann Strauss. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica