ÚFFF málþing í Nýheimum
Á morgun miðvikudaginn 8. september kl.14–17 verður haldið málþing þar sem framtak, fjör og tækifæri ungs fólks á Hornafirði er til skoðunar og umræðu, umræðuefnið er: Afþreying ungs fólks á aldrinum 16–25 ára á Hornafirði Hver er áhuginn?, Hvað er ungt fólk tilbúið að leggja til málanna? Hver er tilbúinn að aðstoða það að ná markmiðunum?. Í ágúst sl. var fjölbreytt dagskrá í boði, þar sem ungt fólk og framtak þess var í brennidepli; þjóðlagatónlist, leikrit, nútímatónlist, kvikmyndagerð og myndlist. Áhugaverð breidd og góð dæmi um frumkvæði ungs fólks, sem sýndi hverju hægt er að áorka sé vilji, orka, ástundun og úthald til staðar. Það er Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, HÚS-hópur, Leikfélag Hornafjarðar, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Nemendafélag FAS, Tónskóli Austur-Skaftafellssýslu og Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar hafa undirbúið málþingið.
Málþinginu er ætlað að skapa umræðu sem leiðir til gjörða, skapa tengsl við önnur ungmenni og leggja grunn að gagnvirkum samskiptum. Á málþingið koma góðir gestir. Heimsókn framhaldsskólanema frá Menntaskólanum á Egilsstöðum og Fjölbrautarskólanum á Selfossi, skapar tækifæri til að mynda tengsl við önnur nemendafélög. Gestirnir eru virkir í nemendafélögum skólanna og munu kynna félagslíf sinna skóla. Óskar Dýrmundur Ólafsson, forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Miðbergs í Reykjavík hefur unnið mikið með ungu fólki og á málþinginu mun hann einkum kynna jaðaríþróttir. Ungmennahús eru nokkur starfandi á landinu og hafa verið í umræðunni undanfarið. Matthías Freyr Matthíasson, forstöðumaður H-Hússins í Hveragerði mun kynna starfsemi þess. Kynnir á málþinginu verður Margrét Erla Maack, sem hefur starfað ötullega í félagsstarfi, einkum leiklist, fyrst með skólafélaginu og einnig með Hinu húsinu í Reykjavík.
Málþingið er mikilvægur vettvangur fyrir hornfirsk ungmenni að láta í sér heyra, kynna það sem þau hafa verið að gera áhugavert og finna leiðir til að láta aðra drauma rætast. Vonast er eftir góðri mætingu allra sem láta sér þessi mál varða.



