Menning

Þorsteinn Sigurbergsson við stjórntækin

Listljósasýning í Mánagarði - 14.09.2004 Menning

Næstkomandi föstudagskvöld verður frumsýning í Mánagarði á Upphafinu sem er listljósasýning eftir Þorstein Grétar Sigurbergsson. Þorsteinn sem er frá Einholti á Mýrum hefur unnið mikið með Leikfélagi Hornafjarðar, fyrst sem leikari, síðar sem leikmyndahönnuður og leikstjóri, en síðustu árin hefur hann starfað mest sem ljósahönnuður og hefur hann m.a. hannað lýsingar fyrir Leikfélag Hveragerðis, Leikfélag Rangæinga, Sjónleik, Leikfélag Fljótsdalshéraðs, Óperustúdíó Austurlands fyrir utan heimaaðilana. Þorsteinn vann ákveðið frumkvöðlastarf þegar hann samdi listljósasýninguna Sólarhring árið 2000 sem fram fór í Hlöðunni á Fiskhól. Lesa meira
 
Allt að verða klárt fyrir upplesturinn

ÚFFF málþing í Nýheimum - 07.09.2004 Menning

Á morgun miðvikudaginn 8. september kl.14–17 verður haldið málþing þar sem framtak, fjör og tækifæri ungs fólks á Hornafirði er til skoðunar og umræðu, umræðuefnið er: Afþreying ungs fólks á aldrinum 16–25 ára á Hornafirði Hver er áhuginn?, Hvað er ungt fólk tilbúið að leggja til málanna? Hver er tilbúinn að aðstoða það að ná markmiðunum?. Í ágúst sl. var fjölbreytt dagskrá í boði, þar sem ungt fólk og framtak þess var í brennidepli; þjóðlagatónlist, leikrit, nútímatónlist, kvikmyndagerð og myndlist. Áhugaverð breidd og góð dæmi um frumkvæði ungs fólks, sem sýndi hverju hægt er að áorka sé vilji, orka, ástundun og úthald til staðar. Það er Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, HÚS-hópur, Leikfélag Hornafjarðar, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Nemendafélag FAS, Tónskóli Austur-Skaftafellssýslu og Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar hafa undirbúið málþingið. Lesa meira
 
Píanósnillingurinn Liene Circene

Píanósnillingurinn Liene Circene í Nýheimum - 06.09.2004 Menning

Næstkomandi fimmtudag mun hinn frábæri lettneski píanóleikari, Liene Circene halda tónleika í Nýheimum. Á efnisskrá tónleikanna eru m.a. verk eftir Beethoven og Rachmaninov. Liene lék í fyrsta sinn á Íslandi fyrir u.þ.b. ári síðan og vakti verðskuldaða athygli fyrir fágaðan leik, leiftrandi flutning og frábæra túlkun og tækni. Í gagnrýni dagblaðanna mátti þá meðal annars lesa þetta: "Liene ræður yfir frábærri tækni er skyggði aldrei á tónlistina sem flaut syngjandi úr flyglinum fram í sal til áheyrenda." "Þetta voru hreint frábærir tónleikar á heimsmælikvarða sem boðið var upp á í Salnum þetta kvöld". Mbl. 26.10.03 Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica