Myndlistargjörningur í Nýheimum.
Myndlistargjörningurinn foodconcert/matarballett verður framinn í miðrými Nýheima á milli sýninga á Epíð. Gjörningurinn er unnin af Þórunni Eymundardóttur, og Daníel Karli Björnssyni, myndlistarmönnum og kokkum og Garðari Rúnari Sigurgeirssyni, kokki og myndlistarmanni. Þórunn er nemandi í Listaháskóla Íslands og Daníel lauk nýlega námi þaðan. Þórunn og Garðar tengjast Skaftfelli á Seyðisfirði en Daníel Klink og Bank í Reykjavík.
Í verkinu er notast við tvær vídeómyndir sem varpað er upp, en jafnframt vinna höfundirnir með mat, sem þeir bjóða gestum. Við hnífa, bretti og skálar eru festir contact míkrafónar, sem tengdir eru í hljóðkerfi og skapast þannig hljóðumhverfi sem er í beinu samhengi við það sem fram fer. Í verkinu styður hvert annað; vídeóin, aðgerðin, hljóðin og áhorfendur. Verkið var fyrst sýnt á listahátíð í Berlín í janúar sl.



