Menning

Dýrslegt fjöldasjálfsmorð

Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð í Sindrabæ - 14.08.2004 Menning

“Með ærslafullum leik og lífsþrótti” flytur Leikfélagið Landsleikur, leikritið Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð. Leikfélagið er skipað hópi ungmenna á aldrinum um tvítugt, sem fékk Ólaf Egil Egilsson til að gera leikgerð byggða á skáldsögunni Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð eftir Finnann, Arto Passilinna. Hópurinn hefur lagt nótt við dag til að útkoman yrði sem best. Þau hafa reynslu af leikstarfi með Herranótt í MR en auk þess sóttu þau námskeið í hreyfingu og spuna hjá Ólöfu Ingólfsdóttur dansara og námskeið í tangódansi hjá Bryndísi Halldórsdóttur og Hany Handaya. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson, en hann hefur náð góðum árangri í vinnu með ungu fólki. Hönnun og umsjón búninga er í höndum Hallgerðar Hallgrímsdóttur, sem bjó á Höfn sem barn og Guðmundur Finnbogason sá um hönnun lýsingar. Hér á Höfn nýtur hópurinn einnig krafta Ingólfs Baldvinssonar ljósamanns hjá Leikfélagi Hornafjarðar. Lesa meira
 
Martina Freytag

Jass-tónleikar í Nýheimum - 14.08.2004 Menning

Á Mánudagskvöldið 16. ágúst verða Jass-tónleikar í Nýheimum kl. 20:00 með söngkonunni Martinu Freytag ásamt Birni Thoroddsen, gítarleikara og Jóni Rafnssyni, bassaleikara. Martina er í heimsókn á Íslandi í ágúst og mun halda nokkra tónleika á þessu tímabili, m.a. á jazzdögum á Akureyri, á Höfn í Hornafirði og í Reykjavík (Hótel Borg og á Menningarnótt Reykjavíkurborgar). Tríó Björns Thoroddsen mun annast undirleik á tónleikum Martinu hér á landi og á dagskránni eru nokkrar íslenskar útsetningar. Martina Freytag er ung og upprennandi söngkona sem hlotið hefur fjölmörg verðlaun og alþjóðlegar viðurkenningar fyrir lagasmíð og söng. Hún vann aðalverðlaun Jass-hátíðarinnar í Leipzig 1994 og fékk verðlaun fyrir Outstanding Work in Jazz Education of the International Association of Jazz Educators Kansan, sem afhent voru árið 2000 í New Orleans. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica