Menning
Þjóðlagatríóið M/S Marmel
Þjóðlagatríóið M/S Marmel

13.08.2004

Þjóðlagatríóið M/S Marmel í Nýheimum

Næstkomandi sunnudagskvöld kl.20 mun norska þjóðlagatríóið M/S Marmel koma fram í Nýheimum og lofar tríóið fjörugum tónleikum og frísklegum vísnasöng. Tríóið er skipað Sigrid Randers-Pehrson, sem syngur, Leif Egil Andersen, sem leikur á fiðlu og Skjalg Bjorstad, sem leikur á harmonikku, píanó og bassa. Þau eru öll vel þekkt í heimalandi sínu og nýjasta efnisskrá þeirra hefur fengið fádæma lof fjölmiðla í Noregi þar sem Sigrid er kölluð drottning þjóðlagatónlistar. Sigrid er frá Vesterålen og hefur menntað sig í mörg ár í þjóðlagatónlist. Hún er tvímælalaust sá núlifandi Norðmaður sem þekkir best þjóðlagahefð í Norður-Noregi. Skjalg er frá Heggelia en hefur nú í mörg ár unnið sem organisti í Sortland auk þess að vera sjálfstætt starfandi sem tónskáld, stjórnandi og spilari með skapandi tónlistarbakgrunn frá unga aldri.

Skjalg er auk þess Noregsmeistari í gömludönsum síðustu þrjú árin. Leif Egil er frá Lofoten en hefur menntað sig við tónlistaháskólann í Þrándheimi og hefur mikla reynslu frá barnsaldri sem einleikari bæði í klassískri tónlist og þjóðlagatónlist. Ferð þremenninganna er samstarfsverkefni Menningarráðs Austurlands og Menningarráðs Vesterålen í Norður–Noregi.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica