Menning

Sögustund í Nýheimum

Sögustundir 3-6 ára barna að hefjast aftur - 27.08.2004 Menning

Á bókasafninu í Menningarmiðstöðinni er góð aðstaða fyrir börn á öllum aldri og margt í boði. Á fimmtudögum í vetur eru börn á aldrinum 3 – 6 ára sérstaklega velkomin, því þá er í boði notaleg, fróðleg og umfram allt skemmtileg sögustund í umsjón Ragnhildar Guðmundsdóttur. Fyrsta sögustundin verður 2. september. Aðgangur ókeypis. Lesa meira
 
Myndlistargjörningur

Myndlistargjörningur í Nýheimum. - 19.08.2004 Menning

Myndlistargjörningurinn foodconcert/matarballett verður framinn í miðrými Nýheima á milli sýninga á Epíð. Gjörningurinn er unnin af Þórunni Eymundardóttur, og Daníel Karli Björnssyni, myndlistarmönnum og kokkum og Garðari Rúnari Sigurgeirssyni, kokki og myndlistarmanni. Þórunn er nemandi í Listaháskóla Íslands og Daníel lauk nýlega námi þaðan. Þórunn og Garðar tengjast Skaftfelli á Seyðisfirði en Daníel Klink og Bank í Reykjavík. Lesa meira
 
Dýrslegt fjöldasjálfsmorð

Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð í Sindrabæ - 14.08.2004 Menning

“Með ærslafullum leik og lífsþrótti” flytur Leikfélagið Landsleikur, leikritið Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð. Leikfélagið er skipað hópi ungmenna á aldrinum um tvítugt, sem fékk Ólaf Egil Egilsson til að gera leikgerð byggða á skáldsögunni Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð eftir Finnann, Arto Passilinna. Hópurinn hefur lagt nótt við dag til að útkoman yrði sem best. Þau hafa reynslu af leikstarfi með Herranótt í MR en auk þess sóttu þau námskeið í hreyfingu og spuna hjá Ólöfu Ingólfsdóttur dansara og námskeið í tangódansi hjá Bryndísi Halldórsdóttur og Hany Handaya. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson, en hann hefur náð góðum árangri í vinnu með ungu fólki. Hönnun og umsjón búninga er í höndum Hallgerðar Hallgrímsdóttur, sem bjó á Höfn sem barn og Guðmundur Finnbogason sá um hönnun lýsingar. Hér á Höfn nýtur hópurinn einnig krafta Ingólfs Baldvinssonar ljósamanns hjá Leikfélagi Hornafjarðar. Lesa meira
 
Martina Freytag

Jass-tónleikar í Nýheimum - 14.08.2004 Menning

Á Mánudagskvöldið 16. ágúst verða Jass-tónleikar í Nýheimum kl. 20:00 með söngkonunni Martinu Freytag ásamt Birni Thoroddsen, gítarleikara og Jóni Rafnssyni, bassaleikara. Martina er í heimsókn á Íslandi í ágúst og mun halda nokkra tónleika á þessu tímabili, m.a. á jazzdögum á Akureyri, á Höfn í Hornafirði og í Reykjavík (Hótel Borg og á Menningarnótt Reykjavíkurborgar). Tríó Björns Thoroddsen mun annast undirleik á tónleikum Martinu hér á landi og á dagskránni eru nokkrar íslenskar útsetningar. Martina Freytag er ung og upprennandi söngkona sem hlotið hefur fjölmörg verðlaun og alþjóðlegar viðurkenningar fyrir lagasmíð og söng. Hún vann aðalverðlaun Jass-hátíðarinnar í Leipzig 1994 og fékk verðlaun fyrir Outstanding Work in Jazz Education of the International Association of Jazz Educators Kansan, sem afhent voru árið 2000 í New Orleans. Lesa meira
 
Þjóðlagatríóið M/S Marmel

Þjóðlagatríóið M/S Marmel í Nýheimum - 13.08.2004 Menning

Næstkomandi sunnudagskvöld kl.20 mun norska þjóðlagatríóið M/S Marmel koma fram í Nýheimum og lofar tríóið fjörugum tónleikum og frísklegum vísnasöng. Tríóið er skipað Sigrid Randers-Pehrson, sem syngur, Leif Egil Andersen, sem leikur á fiðlu og Skjalg Bjorstad, sem leikur á harmonikku, píanó og bassa. Þau eru öll vel þekkt í heimalandi sínu og nýjasta efnisskrá þeirra hefur fengið fádæma lof fjölmiðla í Noregi þar sem Sigrid er kölluð drottning þjóðlagatónlistar. Sigrid er frá Vesterålen og hefur menntað sig í mörg ár í þjóðlagatónlist. Hún er tvímælalaust sá núlifandi Norðmaður sem þekkir best þjóðlagahefð í Norður-Noregi. Skjalg er frá Heggelia en hefur nú í mörg ár unnið sem organisti í Sortland auk þess að vera sjálfstætt starfandi sem tónskáld, stjórnandi og spilari með skapandi tónlistarbakgrunn frá unga aldri. Lesa meira
 
Málverk eftir Rafn Eiríksson

Málverkasýning með meiru - 12.08.2004 Menning

Í tilefni þess að Rafn Eiríksson hefði orðið 80 ára þann 15. ágúst nk. mun fjölskylda hans í samvinnu við Menningarmiðstöð Hornafjarðar opna yfirlitssýningu á verkum hans að Hafnarbraut 36 (Gamla bókasafninu). Rafn var fæddur og uppalinn að Miðskeri í Nesjum. Rafn stundaði nám í myndlistardeild Handíðaskólans í Reykjavík en lauk kennaraprófi árið 1950 og helgaði eftir það ævistarf sitt uppfræðslu barna og ungmenna. Hann var kennari við Nesjaskóla frá 1950, í fjögur ár áður en hann tók við embætti skólastjóra, sem hann gegndi til ársins 1987. Lesa meira
 
Eysteinn Sindri (mynd:FAS)

ÚFFF … Ungt fólk; fjör og framtak - 12.08.2004 Menning

Vikuna 15. til 21. ágúst verður þétt afþreyingardagskrá í boði, þar sem ungt fólk (og fleiri) sýnir svo sannarlega hvað í því býr. Á dagskránni verða þjóðlagatónleikar, jasstónleikar, leikrit, klassískir tónleikar, myndlistargjörningur, málverkasýning, gamlar fréttamyndir frá Hornafirði og síðast en ekki síst frumsýning á nýrri hornfirskri bíómynd. Flytjendur dagskrár eru Hornfirðingar, Austfirðingar, Reykvíkingar, Norðmenn og Þjóðverji. Fólk á öllum aldri er hvatt til að njóta þess sem í boði er og fylgjast með dagskránni sem auglýst er nánar í öllum hornfirskum miðlum. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica