Menning
Úr sýningarskrá MÁL - sýning
Úr sýningarskrá MÁL - sýning

31.07.2004

MÁL sýning um Gunnar og Svavar

Síðastliðinn föstudag var opnuð sýning í Pakkhúsinu á Höfn, sem ber heitið MÁL. Sýningin er liður í samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar þar sem Gunnar Gunnarsson rithöfundur og Svavar Guðnason listmálari eru teknir fyrir sem tveir skapandi einstaklingar er skoruðu heiminn á hólm og öðluðust frægð fyrir verk sín. Á sýningunni er teflt saman myndum eftir Svavar og textabrotum frá Gunnari. Þá er leitast við að draga upp mynd af því sem þessir tveir listamenn áttu sameiginlegt og viðhorf þeirra til listarinnar, lífsins og landsins skoðuð.

Sýningin sem var opnuð á Skriðuklaustri í júlí verður í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði í ágúst og fram til 12. september. Pakkhúsið er opið í ágúst alla daga frá kl. 13–18 og einnig frá kl. 20–22 til 15. ágúst. Opnunartími í september verður auglýstur síðar.
Í haust verður síðan efnt til ritgerðarsamkeppni meðal ungs fólks og málþings, undir yfirskriftinni meistaraverk–meðalmennska, þar sem frægð fyrr og síðar verður í brennidepli. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Austurlands og Nýsköpunarsjóði námsmanna.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica