Menning

Úr sýningarskrá MÁL - sýning

MÁL sýning um Gunnar og Svavar - 31.07.2004 Menning

Síðastliðinn föstudag var opnuð sýning í Pakkhúsinu á Höfn, sem ber heitið MÁL. Sýningin er liður í samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar þar sem Gunnar Gunnarsson rithöfundur og Svavar Guðnason listmálari eru teknir fyrir sem tveir skapandi einstaklingar er skoruðu heiminn á hólm og öðluðust frægð fyrir verk sín. Á sýningunni er teflt saman myndum eftir Svavar og textabrotum frá Gunnari. Þá er leitast við að draga upp mynd af því sem þessir tveir listamenn áttu sameiginlegt og viðhorf þeirra til listarinnar, lífsins og landsins skoðuð. Lesa meira
 
Við Rannveigarhelli  @Þórbergssetur

Dýrðardagur í Staðarfjalli í Suðursveit - 29.07.2004 Menning

Það var mikill dýrðardagur í Staðarfjalli í Suðursveit sunnudaginn 25 júlí síðastliðinn. Sól skein í heiði þegar um 70 manns söfnuðust saman við skógræktargirðinguna og hlýddu á dagskrá tengda stórbrotnu umhverfi og merkilegri sögu Staðarfjalls eða Papbýlisfjalls eins og það hét áður fyrr. Síðan var lagt á fjallið eftir merktri gönguleið upp í Garðhvamm þar sem vígður var kross til minningar um veru Þórbergs Þórðarsonar þar og tekinn til varðveislu birkikross sem hann tálgaði fyrir 100 árum og hafði geymst undir tveimur steinhellum. Snætt var nesti á leiðinni á löggiltum áningarstað smalamanna, þá kom í ljós að 55 höfðu haldið á fjallið frá aldrinum 3ja ára til áttræðs.Í Garðhvammi var stutt dagskrá þar sem Sveinn Ívarsson dóttursonur Þórbergs afhjúpaði krossinn og Ragnheiður Steindórsdóttir leikkona flutti ljóð. Hönnuður verksins er Jón Þórisson sem vígði krossinn með því að láta drjúpa á hann brennivínstár, en uppskrift af Þorláksdropum Þórbergs er ekki þekkt enn. Lesa meira
 
Þórbergur Þórðarson

Dagskrá á vegum Þórbergsseturs á Hala - 17.07.2004 Menning

Þegar ekið er eftir Steinasandi í Suðursveit, framhjá Kálfafelli í átt að Steinafjalli, blasir Staðarfjall eða Papbýlisfjall við í norðri eða norðvestri. Fyrir 100 árum sat Þórbergur Þórðarson þar yfir fráfærulömbum í fjóra daga ásamt fleiri ungum mönnum af Sunnansandabæjunum, eins og siður var á þeim tíma. Þórbergur tálgaði í þessari hjásetu lítinn kross úr birkigrein, fór með upp í fjallið í svonefndan Garðhvamm og reisti hann þar. Krossinn hans Þórbergs hefur nú geymst undir tveimur hellum í Garðhvammi í hundrað ár. Smalamenn á göngum sínum um fjöllin, reistu alltaf krossinn við og létu hugann reika til liðins tíma. Lesa meira
 
Óperan Fósturlandsins freyja

Óperan “Fósturlandsins freyja” - 16.07.2004 Menning

Óperan Fósturlandsins freyja (Le Pays), eftir Joseph-Guy Ropartz, verður kynnt á tónleikum í Hafnarkirkju, Höfn í Hornafirði laugardagskvöldið 24. júlí kl. 20:00. Daginn áður er hún kynnt á tvennum tónleikum á Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði. Flytjendur eru Sigrún Hjálmtýsdóttir, Bergþór Pálsson, Gunnar Guðbjörnsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir. Þá mun Elín Pálmadóttir kynna söguna fyrir gestum og verða sögumaður. Íslenskri þýðingu verður varpað upp á vegg. Aðgangseyrir er kr. 1.900.- en félagar í Listvinasjóði Hornafjarðar njóta 50 % aflsáttar. Lesa meira
 

Menningardagar á Hornafirði helgina 24. og 25. júlí 2004 - 16.07.2004 Menning

Óperuflutningur - Sigrún Hjálmtýsdóttir - Bergþór Pálsson - Gunnar Guðbjörnsson - Helga Bryndís Magnúsdóttir - Elín Pálmadóttir - Franskar skútur - Þórbergur Þórðarson - gönguferð í Garðhvamm - Krossinn hans Þórbergs. Laugardagskvöldið 24. júlí kl. 20:00 í Hafnarkirkju, verður óperan Fósturlandsins Freyja (Le Pays) eftir Joseph-Guy Ropartz flutt í konsert formi í Hafnarkirkju. Sunnudaginn 25. júlí verður dagskrá á vegum Þórbergsseturs við Staðarfjall í Suðursveit, því stórbrotna umhverfi. Lesa meira
 
Páll Thayer er Í forsvari fyrir vinnustofunni á Íslandi

Ísland að innan og utan - 05.07.2004 Menning

Þvermenningarleg kortlagning: Ísland að innan og utan er heiti á 10 daga vinnustofu myndlistarmanna sem vinna með tölvur við sköpun sína. Vinnustofan fer fram í Nýheimum á Opnu húsi miðvikudaginn 7. júlí frá kl. 20-22. og eru Hornfirðingar hvattir til að koma og kynnast því hvernig tölvur og staðsetningartæki eru notuð til listsköpunar og ekki síður að fá tæknilegar upplýsingar um möguleika nýrrar samskiptatækni. Vinnustofan er ein 6 vinnustofa sem fara fram víðs vegar í Evrópu undir heitinu Trans-Cultural sem stýrt er af RIXC í Riga í Lettlandi. Lesa meira
 
Þorleifur Hjaltason Hreppstjóri í Hólum @Jóhanna V. Arnbjörnsdóttir

Menningarmiðstöð eignast ljósmyndasafn Jóhönnu V. Arnbjörnsdóttur - 01.07.2004 Menning

Menningarmiðstöð Hornafjarðar eignaðist nýverið ljósmyndsafn Jóhönnu V. Arnbjörnsdóttur sem hefur að geyma myndir sem hún hefur tekið víða og á ljósmyndastofu sinni á 12 ára tímabili. Myndasafnið hefur að geyma ýmsar myndir svo sem af mannlífi, landslagi, skóla- og bekkjamyndir ásamt myndum af viðburðum eins og Skeiðarárhlaupinu 1996. Safn Jóhönnu hefur mikið heimildargildi, hefur að geyma mjög dýrmætar heimildir í rúman áratug í sögu þessa byggðarlags, og er það aðal tilgangur þess að Menningarmiðstöðin eignaðist það. Myndir úr safninu verða gerðar aðgengilegar þeim sem þess óska og einnig verður mögulegt að fá eftirtökur af myndum Jóhönnu. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica