Menning
Gjess - Sól á rauðum kjól
Gjess - Sól á rauðum kjól

28.06.2004

Á Humarhátíð - Sól á rauðum kjól

„gjess“ í Pakkhúsinu júlí 2004

Myndverkamaðurinn „gjess“ er eitt af birtingarformum Guðjóns Sigvaldasonar leikstjóra, en hann er Hornfirðingum kunnur fyrir uppsetningar sínar á ýmsum leikverkum hér á Höfn. Það eru þó ekki allir sem vissu að myndlist allskonar er einnig eitt af því sem hann tekur sér fyrir hendur, þó að vísu mætti ráða í það t.d með leikmyndinni á leikverkinu „Stræti“ sem sett var upp í Mánagarði 1996, þá hefur líka mátt sjá hugmyndavinnu hans í útfærslu búninga og ýmiskonar gerva á fyrri Humarhátíðum, en hann stjórnaði fríðum flokki Hornfirðinga í götuleikhúsi bæjarins hér á árum áður.

Guðjón er að mestu sjálfmenntaður í myndlistinni, en á sínum yngri árum nam hann myndlist við Myndlistarskóla Reykjavíkur, og sótti síðar ýmis námskeið í þeim fræðum. Guðjón er hér á ferð á Humarhátíð með sína þriðju einkasýningu, en auk þess hefur hann tekið flátt í nokkrum samsýningum með kunnum listamönnum.
Guðjón vinnur verk sín í olíupastel á dagblaðapappír, en verkin halda áfram að þróast án hans aðstoðar, því dagblaðapappír er sýrður, gulnar með tímanum, verður stökkur og brothættur. Myndverkin eru öll unnin á árinu 2004, í sambland stíll teiknimyndablaða og naívisma, í skærum afdráttarlausum litum. Guðjón starfar fyrst og fremst sem leikstjóri, en hefur einnig dundað við leik, leikkennslu, leikmyndagerð, ritstörf, myndverkasmíð, söng og barmennsku. Helstu afrek hans eru enn óskráð.
Guðjón er fæddur þann 5. október 1963 í Reykjavík, komin af Snæfellingum í húð og hár, alin upp í sveit til að byrja með, fluttist á mölina og gekk í gegn um skólagöngu þar, menntaði sig síðar í leiklist í Bretlandi og hefur starfað ötullega í faðmi listagyðjanna síðan. Hann hefur stjórnað á sjötta tug leikverka, skrifað á annan tug leikrita og leikþátta, gefið út þrjár ljóðabækur, eina skáldsögu auk ýmissa smásagna og annarra greina sem og alls hins sem tækifæri hafa leitt hann út í að taka sér fyrir hendur.
Sýningin : „sól á rauðum kjól...“ verður uppi í Pakkhúsinu fram til 25. júlí og er opin á opnunartíma Pakkhússins.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica