Menning

Sænskir tónlistarmenn í Nýheimum

Sænskir tónlistarmenn í Nýheimum - 28.06.2004 Menning

Næstkomandi fimmtudagskvöld 1.júlí kl. 20:30 munu sænskir tónlistarmenn flytja tónlist í Nýheimum. Á þessum tónleikum verður flutt tónlist frá endurreisnartímabilinu en þess háttar tónlist heyrist ekki oft á Austurlandi. Flytjendurnir eru þrír tónlistarmenn frá Svíþjóð sem spila á upprunaleg hljóðfæri. Það eru þau Annette Taranto messosópran, Sven Aberg sem spilar á lútu og vihuela, sem er spænskt strengjahljóðfæri og Björg Ollén á þverflautu. Tónlistin sem þau flytja er kölluð „Musica Humana“. Í gömlu ítölsku ljóði, frottola, eru eftirfarandi línur: Lesa meira
 
Gjess - Sól á rauðum kjól

Á Humarhátíð - Sól á rauðum kjól - 28.06.2004 Menning

Myndverkamaðurinn „gjess“ er eitt af birtingarformum Guðjóns Sigvaldasonar leikstjóra, en hann er Hornfirðingum kunnur fyrir uppsetningar sínar á ýmsum leikverkum hér á Höfn. Það eru þó ekki allir sem vissu að myndlist allskonar er einnig eitt af því sem hann tekur sér fyrir hendur, þó að vísu mætti ráða í það t.d með leikmyndinni á leikverkinu „Stræti“ sem sett var upp í Mánagarði 1996, þá hefur líka mátt sjá hugmyndavinnu hans í útfærslu búninga og ýmiskonar gerva á fyrri Humarhátíðum, en hann stjórnaði fríðum flokki Hornfirðinga í götuleikhúsi bæjarins hér á árum áður. Lesa meira
 
Det Danske Drengekór á köldum klaka (Skaftafellsjökli) @Ragnar Frank

Svo litlir og sungu svo yndislega - 28.06.2004 Menning

“Ó þeir voru svo yndislegir og þeir voru svo litlir og sungu svo yndislega” sagði Guðlaug Hestnes þegar hún var spurð um tónleika Det Danske Drengekór í Hafnarkirkju sl. föstudagskvöld. Þeir voru svo frábærir og söngskráin fjölbreitt, þeir voru með sálma, þjóðlög, gospeltónlist, djass og svo sungu þeir á íslensku lagið, Á Sprengisandi. Það virtist ekki vera hlutverk neinna sérstakra að syngja einsöng heldur að þeir skiptu því með sér og það hefur aldrei fyrr komið fyrir mig á tónleikum, að ég fór hreinlega að gráta þegar tveir litlir drengir gengu fram og sungu, þeir voru svo yndislegir sagði Guðlaug og bætir við “þessir drengir eru svo sannarlega landi sínu til sóma”. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica