Jöklasafnið opnar
Jöklasafnið á Hornafirði verður opnað á morgun laugardag. Safnið er sem fyrr til húsa í fyrrum vöruhúsi Kask við Hafnarbraut. Nokkrar breytingar og endurbætur hafa verið gerðar á húsnæðinu svo sem sett nýtt efni á gólfin, sem setur miklu betri heildarsýn yfir sýninguna, anddyri hefur verið stækkað og ný hreinlætisaðstaða sett upp. Annað skipulag er svipað og verið hefur. Jöklasýningin er í umsjá Menningarmiðstöðvarinnar og starfsmenn við hana í sumar verða þær Guðrún Ingimundardóttir, Margrét Kristinsdóttir og Inga Jónsdóttir.
Rúmlega þrjú þúsund manns komu á jöklasýninguna í fyrra.
Sýningin verður opin frá kl 13-18 og 20- 22 í júní. Í júlí og ágúst verður einnig opið frá kl 9-11. Guðrún og Margrét munu einnig sjá um upplýsingamiðstöð Hornafjarðar í Nýheimum.



