Menning
Seamusar Heaney og Liams O’Flynn
Seamus Heaney og Liam O’Flynn
Seamus Heaney og Liam O’Flynn

12.05.2004

Skáldið og Sekkjapípuleikarinn

Laugardaginn 22. maí verður einn af dagskrárliðum Listahátíðar í Reykjavík frumfluttur í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Þetta er dagskráin ”Skáldið og sekkjapípuleikarinn” sem er nýjasta afurð Nóbelsverðlaunahafans Seamusar Heaneys og hins virta írska tónlistarmanns Liams O’;Flynn sem leikur á hið sérstæða hljóðfæri Uilleann pipes eða “olnbogapípu”. Dagskráin, sem byggir á írskum þjóðlögum og textum og ljóðum Seamusar Heaneys, sem hann flytur sjálfur, hefst kl. 21:00 og er miðasala hafin í síma 470 8050. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að hlýða á dagskrá sem hefur farið sigurför um heiminn.

Ýmislegt annað er í boði til afþreyingar og skemmtunar á Hornafirði, svo sem ferð á söguslóðir Þórbergs Þórðarsonar, jöklaferðir, veitingahús og margt fleira.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica