Menning

Jöklasýning á Höfn

Jöklasafnið opnar - 28.05.2004 Menning

Jöklasafnið á Hornafirði verður opnað á morgun laugardag. Safnið er sem fyrr til húsa í fyrrum vöruhúsi Kask við Hafnarbraut. Nokkrar breytingar og endurbætur hafa verið gerðar á húsnæðinu svo sem sett nýtt efni á gólfin, sem setur miklu betri heildarsýn yfir sýninguna, anddyri hefur verið stækkað og ný hreinlætisaðstaða sett upp. Annað skipulag er svipað og verið hefur. Jöklasýningin er í umsjá Menningarmiðstöðvarinnar og starfsmenn við hana í sumar verða þær Guðrún Ingimundardóttir, Margrét Kristinsdóttir og Inga Jónsdóttir. Lesa meira
 
Seamusar Heaney og Liams O’Flynn

Skáldið og Sekkjapípuleikarinn - 12.05.2004 Menning

Laugardaginn 22. maí verður einn af dagskrárliðum Listahátíðar í Reykjavík frumfluttur í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Þetta er dagskráin ”Skáldið og sekkjapípuleikarinn” sem er nýjasta afurð Nóbelsverðlaunahafans Seamusar Heaneys og hins virta írska tónlistarmanns Liams O’Flynn sem leikur á hið sérstæða hljóðfæri Uilleann pipes eða “olnbogapípu”. Dagskráin, sem byggir á írskum þjóðlögum og textum og ljóðum Seamusar Heaneys, sem hann flytur sjálfur, hefst kl. 21:00 og er miðasala hafin í síma 470 8050. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að hlýða á dagskrá sem hefur farið sigurför um heiminn. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica