Menning

Mynd eftir Svavar Guðnason

Frá Pakkhúsinu lá leiðin . . . - 07.04.2004 Menning

Elstu myndverk Svavars Guðnasonar í eigu Listasafns Austur-Skaftafellssýslu verða til sýnis í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði yfir páskana. “Ég tók hverja túpu fyrir sig og hélt á henni, eins og ég hefði náð handtaki á hamingjunni ...” Þannig lýsir Svavar fyrstu kynnum sínum við litatúpur í viðtali við Matthías Johannessen í Nýju Helgafelli, árið 1959. Túpurnar voru pantaðar beint frá Englandi, af félögum á Höfn, þeim Bjarna Guðmundssyni, Höskuldi Björnssyni og Svavari Guðnasyni. Þeir höfðu kynnst málaralist af listmálurum sem komu til Hafnar að mála, þeim Ásgrími Jónssyni og Kjarval sem og Jóni Þorleifssyni frá Hólum í Nesjum, sem 1918 sigldi til Kaupmannahafnar til að nema málaralist. Lesa meira
 
María og Guðrún starfsmenn MMH dáðst að nýja kerfinu

Nýtt landskerfi bókasafna - 05.04.2004 Menning

5. apríl, tóku flest stærri almenningsbókasöfn landsins nýtt landskerfi bókasafna, Gegni, í notkun. Þeirra á meðal er Menningarmiðstöð Hornafjarðar í Nýheimum. Kerfið hafði áður verið tekið í notkun í háskóla- og sérfræðibókasöfnum. Gegnir leysir af hólmi eldri bókasafnskerfi og sameinar öll bókasöfn landsins í einu kerfi. Með því aukast möguleikar á samnýtingu á gríðarmiklum bóka- og upplýsingakosti á bókasöfnum landsins. Fyrstu daga hins nýja kerfis má búast við truflunum á afgreiðslu bókasafnsins í Nýheimum en eftir páska vonast starfsmenn til þess að vera búnir að ná góðum tökum á kerfinu. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica