Menning
Áshildur Haraldsdóttir
Áshildur Haraldsdóttir

30.03.2004

Áshildur Haraldsdóttir með tónleika í Nýheimum

Áshildur Haraldsdóttir, flautuleikari heldur tónleika í Nýheimum á Hornafirði, fimmtudaginn 1. apríl og hefjast tónleikarnir kl 20:00. Efnisskráin spannar mest allt tímabil vestrænnar tónlistarsögu, fer um víðan völl heimshorna á milli og Áshildur nýtir sér einnig tæknina, tölvuhljóð og delayvél, til að auka fjölbreytileika tónleikanna. Á tónleikunum koma einnig fram nokkrir nemendur Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu.

Heimsókn og tónleikar Áshildar til Hafnar er samstarf Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT), Menntamálaráðuneytisins, Tónlistarskóla Hornafjarðar og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.-, en ókeypis fyrir grunnskólanema

Tónlistarferill Áshildar er glæsilegur. Hún lauk "Bachelor Of Music " - prófi með hæstu einkun í hljóðfæraleik frá The New England Conservatory Of Music, 1986 og "Master Of Music" - prófi frá The Juilliard School í New York, 1988. Hún varð fyrsti flautuleikarinn til að komast inn í Konservatoríið í París í nám í svokölluðum "Cycle de Perfectionnement", og lauk því námi árið 1992.
Hún hefur unnið til fyrstu verðlauna í "The New England Conservatory Commencement Competition" (1986), "The Annual James Pappoutsakis Memorial Fund Competition" (1986), og "The International Young Concerts Artists Competition of Royal Tunbridge Wells" (1989). Hún hefur einnig hlotið þriðju verðlaun á alþjóðlegu flautukeppninni "Flute d´Or" í Frakklandi (1992). Hún hlaut önnur verðlaun í alþjóðlegu flautukeppninni "Syrinx" á Ítalíu (1995) auk fyrstu verðlauna fyrir besta flutning á nútímaverki. Áshildur var einnig valin fulltrúi Íslands á Tvíæring ungra norrænna einleikara 1988.
Áshildur hefur haldið fjölda einleikstónleika í sölum á borð við Lincoln Center og Cami Hall, New York og Barbican Center og The Purcell Room, London. Hún hefur einnig komið fram sem einleikari með ýmsum symfóníuhljómsveitum og kammersveitum víða um heiminn. Hún hefur komið fram í útvarpi og sjónvarpi í Bandaríkjunum, á öllum Norðurlöndunum og í Frakklandi og leikið reglulega í BBC í Englandi.
Síðan árið 1991, hefur Áshildur hljóðritað " sóló "-geisladiskana "Joueuse de Flûte", "Undine", og "Concertos by C.Ph.E. Bach, Benda and Haydn" fyrir sænska útgáfufyrirtækið Intim Musik, og "Miniatures" með meðleik Selmu Guðmundsdóttur fyrir íslenska útgáfufyrirtækið Spor. Hún hefur einnig leikið kammermúsík inn á diska hjá ITM og franska fyrirtækið " Timpani " þar sem hún lék með tónlistarmönnunum Alain Marion, Michel Arrignon et Pascal Devoyon Áhildur var meðlimur Die Deutsche Kammerphilharmonie árið 1992 til 1993 og kammerhljómsveitarinnar L´Orchestre Symphonique Français frá árinu 1995 til 1997 og Sinfóníuhljómsveit Íslands 1998 til 2000. Geta má þess að Áshildur hefur margsinnis frumflutt íslensk verk heima og erlendis og eru íslensk verk mjög oft á efnisskrá hennar.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica