Menning

Þórbergur Þórðarson

Þórbergur og esperantó - 05.03.2004 Menning

Íslenska esperantosambandið og Þórbergssetur halda málþing um Þórberg Þórðarson í Norræna húsinu 12. mars næstkomandi á afmælisdag meistarans. Málþingið stendur frá kl. 16:00-19:00. Meðal annars verður lesið upp úr þýðingum á verkum Þórbergs sem hann skrifaði á esperanto. Matthías Johannessen skáld les kafla úr bók sinni Í kompaníi við allífið. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur flytur erindi sem hann kallar, Hvað vildi Þórbergur? Og Jón Hjartarson leikari stígur á svið og flytur efni úr Sálminum um blómið. Kristján Eiríksson bókmenntafræðingur hefur rannsakað handritasafn Þórbergs í Landsbókasafninu. Þar eru mörg handrit skrifuð á esperanto sem fáir hafa séð. Lesa meira
 
Úthlutun styrkja frá Menningarráði Austurlands

Tuttugu milljónir króna til 57 verkefna - 05.03.2004 Menning

Menningarráð Austurlands úthlutaði í dag 19,8 milljónum króna til menningarstarfs á Austurlandi við hátíðlega athöfn á Hótel Framtíð á Djúpavogi. Þetta er í fjórða sinn sem úthlutað er styrkjum samkvæmt samstarfssamningi menntamálaráðuneytisins og sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál. Alls bárust 126 umsóknir um styrki og var ákveðið að úthluta til 57 verkefna. Hæsti styrkurinn var að upphæð 1,5 m. kr. en sá lægsti 50 þús. kr. Menningarráð Austurlands lagði áherslu á þrennt við þessa úthlutun: nýsköpun, samstarf og ungt fólk. Sótt var um framlög til margra nýrra og metnaðarfullra verkefni og ljóst að framundan er líflegt menningarár á Austurlandi. Nýr menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, afhenti 19 hæstu styrkina, en þá hlutu að þessu sinni: Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica