Menning

Áshildur Haraldsdóttir

Áshildur Haraldsdóttir með tónleika í Nýheimum - 30.03.2004 Menning

Áshildur Haraldsdóttir, flautuleikari heldur tónleika í Nýheimum á Hornafirði, fimmtudaginn 1. apríl og hefjast tónleikarnir kl 20:00. Efnisskráin spannar mest allt tímabil vestrænnar tónlistarsögu, fer um víðan völl heimshorna á milli og Áshildur nýtir sér einnig tæknina, tölvuhljóð og delayvél, til að auka fjölbreytileika tónleikanna. Á tónleikunum koma einnig fram nokkrir nemendur Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Lesa meira
 
Gegnir nýtt bókasafnskerfi

Röskun á starfsemi bókasafns - 19.03.2004 Menning

Viðskiptavinir bókasafnsins athugið. Frá og með föstudeginum 26. mars verður bókasafnskerfi almenningsbókasafna lokað vegna yfirfærslu á nýju landskerfi bókasafna, Gegni. Nýja kerfið verður komið í gagnið mánudaginn 5. apríl. Lesa meira
 
Helga Braga og 100% Hitt

Helga Braga með 100% Hitt til Hafnar - 16.03.2004 Menning

Sýning Helgu Brögu "100% Hitt" sem sýnd hefur verið í tónlistarhúsinu Ými í vetur er á leiðinni til Hafnar í Hornafirði. Ein sýning er fyrirhuguð í Sindrabæ laugardaginn 3. apríl. Forsala miða er í Menningarmiðstöð Hornafjarðar -bókasafninu og er miðaverð kr. 2.200.-. “Hitt“ er íslensk uppfærsla á uppistandi austurríska atferlisfræðingsins Bernhards Ludwigs um hvernig á að öðlast fullkomna kynferðislega ófullnægju. Lesa meira
 
Eldsmiðurinn, Sigurður Filippusson

100 ára afmæli Sigurður Filippussonar - 06.03.2004 Menning

Í dag hefði Sigurður Filippusson "Eldsmiðurinn" orðið 100 ára og af því tilefni verður mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar Eldsmiðurinn, sem gerði Sigurð ódauðlegan sýnd í Nýheimum kl.14, 15 og 16. Myndin var framleidd 1981 og er 18 mín. að lengd. Sigurður fæddist í Digurholti á Mýrum 6.mars 1904 og ólst þar upp en flutti að Hólabrekku um 1940. Á yngri árum starfaði Sigurður vetrarlangt hjá Vélsmiðju Jóhanns Hanssonar á Seyðisfirði og taldi sig hafa af þeirri veru mikið gagn enda voru þar snemma á öldinni orðlagðir járnsmiðir og vélamenn eins og alla tíð síðan. Á Hólabrekku byggði Sigurður sér lítið hús sem bæði var svefnsstaður hans og smiðja. Sigurður lést 27. febrúar 1989, 85 ára að aldri en hann hafði áður ánafnað Byggðasafninu eigur sínar. Lesa meira
 
Þórbergur Þórðarson

Þórbergur og esperantó - 05.03.2004 Menning

Íslenska esperantosambandið og Þórbergssetur halda málþing um Þórberg Þórðarson í Norræna húsinu 12. mars næstkomandi á afmælisdag meistarans. Málþingið stendur frá kl. 16:00-19:00. Meðal annars verður lesið upp úr þýðingum á verkum Þórbergs sem hann skrifaði á esperanto. Matthías Johannessen skáld les kafla úr bók sinni Í kompaníi við allífið. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur flytur erindi sem hann kallar, Hvað vildi Þórbergur? Og Jón Hjartarson leikari stígur á svið og flytur efni úr Sálminum um blómið. Kristján Eiríksson bókmenntafræðingur hefur rannsakað handritasafn Þórbergs í Landsbókasafninu. Þar eru mörg handrit skrifuð á esperanto sem fáir hafa séð. Lesa meira
 
Úthlutun styrkja frá Menningarráði Austurlands

Tuttugu milljónir króna til 57 verkefna - 05.03.2004 Menning

Menningarráð Austurlands úthlutaði í dag 19,8 milljónum króna til menningarstarfs á Austurlandi við hátíðlega athöfn á Hótel Framtíð á Djúpavogi. Þetta er í fjórða sinn sem úthlutað er styrkjum samkvæmt samstarfssamningi menntamálaráðuneytisins og sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál. Alls bárust 126 umsóknir um styrki og var ákveðið að úthluta til 57 verkefna. Hæsti styrkurinn var að upphæð 1,5 m. kr. en sá lægsti 50 þús. kr. Menningarráð Austurlands lagði áherslu á þrennt við þessa úthlutun: nýsköpun, samstarf og ungt fólk. Sótt var um framlög til margra nýrra og metnaðarfullra verkefni og ljóst að framundan er líflegt menningarár á Austurlandi. Nýr menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, afhenti 19 hæstu styrkina, en þá hlutu að þessu sinni: Lesa meira
 
Sólarupprás í mars

Menningarráð Austurlands úthlutar styrkjum - 04.03.2004 Menning

Úthlutun á styrkjum frá Menningarráði Austurlands fer fram á Hótel Framtíðin, Djúpavogi í dag og hefst athöfnin kl.13:00 með fundi um menningarmál. Á menningarfundinum verður kynnt samstarf við Vesterålen í Noregi og Listahátíð í Reykjavík 2004. Meðal þeirra sem flytja munu erindi eru Erik Brugge menningarfulltrúi í Vesterålen og Katarine Ström sem mun kynna áhugavert verkefni fyrir unga listnema, “Tilbageströmmen”. Erik og Katarine komu í heimsókn í gær til Menningarmiðstöð Hornafjarðar þar sem þau kynntu starf sitt í Noregi. Úthlutun menningarstyrkjanna fer síðan fram kl. 15:30. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra mun afhenda menningastyrkina. Lesa meira
 
Hera Hjartardóttir var meðal þeirra sem skemmti í Nýheimum

Metaðsókn á Vegavinnutónleikana í Nýheimum - 04.03.2004 Menning

Vegavinnutónleikarnir sem fram fóru í Nýheimum sl. þriðjudagskvöld hafa fengið mikið lof þeirra sem á hlýddu. Nánast hvert sæti var setið og þarna voru áheyrendur á öllum aldri. Þetta er mesta aðsókn að einstökum viðburði í Nýheimum sagði Inga Jónsdóttir hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Þetta voru þrír sérstakir tónleikar með flytjendum frá Íslandi, Ítalíu og Bretlandi. Inga segir að ítalska söngkonan Fiamma ásamt hljómsveit hafi vakið mikla hrifningu og lokalag þeirra verið ótrúlega flott, fjölhæfni þeirra mikil og þau hafi hrifið fólkið gersamlega. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica