Tónskáld í Nýheimum
Atli Heimir Sveinsson tónskáld lék ljúfa tóna fyrir gesti í Nýheimum í hádeginu í dag. Hann kynnti í tali og tónum nokkrar af perlum leikbókmenntanna sem hann hefur samið tónlist við. Í hádeginu á föstudögum eru óvæntar uppákomur í Nýheimum. Þar koma fram listamenn af heimaslóð og gestir eins og Atli Heimir. Oftast eru þessir viðburðir tilfallandi og ekki vitað með miklum fyrirvara hvað er á dagskrá hverju sinni.
Gestir í Nýheimum geta því átt von á að kynnast því fjölbreytta menningarstarfi sem fram fer í héraðinu og einnig að fá að njóta góðra og þjóðþekktra listamanna eins og raunin varð í dag.



