Tímamótaviðburður á Höfn
Eins og fram hefur komið var undirritað samkomulag um samstarf Listahátíðar í Reykjavík við Menningarráð Austurlands 5. desember sl. hér á Höfn.
Samkomulagið er mikilvægt skref í átt að nýrri samvinnu Listahátíðar í Reykjavík og landsbyggðarinnar. Er því ætlað að verða að föstum lið í framtíðinni, einkum eftir að ákveðið var að Listahátíð í Reykjavík yrði haldin árlega frá og með næstu hátíð. Þá eru í gangi viðræður við Byggðastofnun um aðkomu stofnunarinnar að þessari samvinnu.
Dagskrá írska Nóbelskáldsins Seamusar Heaney og sekkjapípuleikarans Liams O’;Flynn, “Skáldið og sekkjapípuleikarinn” verður hápunktur þessa samstarfs, en dagskrá Íranna verður frumflutt hér á landi laugardaginn 22. maí í Nýheimum, Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Önnur sýning verður á Akureyri 23. maí og sú þriðja á Listahátíð í Reykjavík 24. maí. Dagskráin hefur verið flutt í helstu menningarmiðstöðum víða um heim, m.a. á Kennedy Center og í Barbican í London. Í henni segir Seamus í bundnu og óbundnu máli frá bernskudögum á N-Írlandi, en Liam leikur írska tónlist á hið sérstæða hljóðfæri Uilleann pipes, sem er eins konar “olnbogapípa”.
Sérsvið Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar er einmitt bókmenntir, og er verið að kynna verk Nóbelskáldsins í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu á Höfn í aðdraganda þessa viðburðar.



