Haukur Þorvaldsson hlaut Menningarverðlaun Hornafjarðar
Á föstudag fór fram afhending Menningarverðlauna Hornafjarðar og fór athöfnin fram í Nýheimum að viðstöddu fjölmenni. Menningarmálanefndin auglýsti eftir tilnefningum til verðlaunanna auk þess lögðu einstakir nefndarmenn fram tilnefningar. Eftirfarandi aðilar hlutu tilnefningu: Leikhópurinn Lopi fyrir öflugt leiklistarstarf ungmenna, Haukur H. Þorvaldsson fyrir áratuga starf að tónlistar- og menningarmálum, Ungmennafélag Öræfinga/ritnefnd fyrir útgáfu Félagsvinarins, Þorbjörg Arnórsdóttir fyrir vinnu við stofnun Þórbergsseturs, Parket fyrir tónlitarstarf fyrir ungt fólk og aðstandendur sýningarinnar Með allt a hreinu fyrir metnaðarfulla skemmtidagskrá.
Samþykkt var að Haukur Þorvaldsson fengi menningarverðlaun Hornafjarðar að þessu sinni fyrir langt og mikið starf að tónlistar- og menningarmálum í sveitarfélaginu. Haukur hefur einnig unnið lengi með unglingunum að þeirra tómstundamálum.



