Evrópuvegavinna á ferð um Ísland
Stórtónleikar verða haldnir í Nýheimum 2. mars n.k. Tónleikarnir sem bera nafnið “Evrópuvegavinna á ferð um Ísland” eru samvinnuverkefni hjá tonlist.is, European Roadworks og Rás 2. Í kjölfarið á Vegavinnu túr sem skipulagður var um landið í nóvember sl. með tónlistarfólkingu Heru, Santiago og Geir Harðarsyni mætir Hera nú aftur en að þessu sinni með félögum sínum frá Bretlandi og Ítalíu. Hera, Fiamma og Adam Masterson komu í fyrsta sinn saman fram á Eurosonic hátíðinni í Hollandi sem haldin var í janúar.
Undirtektir voru gríðarlega góðar og í kjölfarið hafa öll þrjú fengið tilboð um að spila á alþjóðlegum tónleikahátíðum í sumar. Hornfirskir tónlistarmenn munu ekki láta sitt eftir liggja á tónleikum og fram munu koma: Hulda Rós og Parket, Black Hole og Think Pink.
Adam Masterson er 22 ára gamall Lundúnabúi sem sækir áhrif sín til Van Morrison og Bruce Springsteen. Hann hefur nýverið sent frá sér sína fyrstu plötu sem nefnist, One Tale Too Many. Platan hefur fengið einróma lof gagnrýnanda sem kalla hana m.a. geislandi frumraun.
Fiamma er ítölsk söngkona sem nýlega hefur sent frá sér sína fyrstu sólóplötu, 'Contatto'. Fiamma kemur fram með sekkjapípu- og bassaleikaranum Jessica Lombardi og Alberto Cottica sem leikur á harmóniku, gítar og píanó. Tónlistarstefna Fiamma er blönðuð óræðinni lagagerð í sínu einfaldasta formi og raftónlist og hefur verið nefnd ”ethno-techno”.
Hera hefur sent frá sér fjórar plötur og hefur sýnt og sannað að þrátt fyrir ungan aldur eigi hún erindi á svið með lagagerð sína og texta. Hún sendi frá sér geisladiskinn, Eins og Hafið, fyrir jólin á Íslandi en er það jafnframt fyrsta platan sem hún semur á íslensku. Hera var valinn besta söngkona ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum árið 2003. Nýjasta plata hennar fór í gull fyrir sölu.



