Menning
Listaverk á Breiðarmerkursandi
Listaverk á Breiðarmerkursandi

28.01.2004

Umsóknarfrestur framlengdur

Menningarráð Austurlands hefur framlengt umsóknarfrest vegna verkefnastyrkja til menningarstarsemi á Austurlandi til 10. febrúar. Þetta er í fjórða skiptið sem úthlutað er og á síðasta ári voru umsóknir 140 og var úthlutað til 88 verkefna, þar af 18 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Hæsti styrkur sem úthlutað er í hvert verkefni eru 2,5 milljónir. Áhersla við styrkveitingu 2004 er samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs. Sérstakt vægi fá verkefni sem miða að fjölgun starfa og aðkomu ungs fólks að listum og menningu. Nú er bara að hvetja alla sem hafa áhuga á að sækja um að setjast niður og senda inn umsókn sem þarf að berast Menningarráði í síðasta lagi 10.febrúar n.k.

Nánari upplýsingar um verkefnastyrki Menningarráðs Austurlands er að finna á vefsíðunni skriduklaustur.is

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica