Menning
Blekbytta Þórbergs
Blekbytta Þórbergs
Blekbytta Þórbergs sem nemendur Iðnskólans í Reykjavík 1924-1925 gáfu honum eftir að yfirvöld skólans höfðu vísað honum frá kennslu eftir að hann skrifaði bókina Bréf til Láru.

22.01.2004

Stefnt að opnun Þórbergsseturs 2005

Stefnt er á að opna Þórbergs-setur á Hala í Suðursveit í júní 2005 og er undirbúningur kominn á skrið. María Gísladóttir hefur fengið skrifstofu í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum þar sem hún vinnur að söfnun gagna um Þórberg.
Mitt hlutverk er að kortleggja æfi Þórbergs í tímabil segir María, hann fékkst við svo margt og hafði mörg mismunandi áhugamál. Ég er að finna gögn, myndir og texta jafnvel gömul bréf og tala við fólk sem hitti Þórberg man eftir honum og getur sagt frá því.

Þetta sem María er að vinna að fer síðan til Jóns Þórissonar sýningarhönnuðar í Reykjavík sem ásamt fleirum velur úr þessu efni og ákveður hvað verður notað og mun hann sjá um uppsetningu á Þórbergssetrinu á Hala þegar það verður opnað.
Þetta er mjög áhugavert og skemmtilegt starf og ég er komin hér með skrifborð, stól, tösku og mælingatæki sem Þórbergur átti og myndir af honum á veggina segir María og bætir við að þetta sé eiginlega orðið lítil útgáfa af Þórbergssetri, virkilega notalegt.
Maríu langar til að komast í samband við fólk sem lumar á myndum úr Suðursveit eða efni sem tengist Þórbergi.

Þórbergssetur verður ekki í Gamla-Halabænum eins og fyrirhugað var og er ekki búið að ákveða hvernig bærinn verður nýttur eða tengdur setrinu,það býður betri tíma segir Þorbjörg Arnórsdóttir á Hala. Komin er hönnun á húsnæði sem til er á staðnum og stefnt er á að hefja framkvæmdir í haust. Það er ekki mikið til af munum sem tilheyrðu Þórbergi og þetta er ekki hugsað sem safn heldur sem fræðasetur og sýning þar sem sett yrði upp einskonar heimur úr bókum Þórbergs og leikmyndir. Það eru margar hugmyndir komnar um hvernig hægt er að hafa þetta og svo er bara að velja úr þeim segir Þorbjörg.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica