Verkefnastyrkir til menningarstarfs
Menningarráð Austurlands auglýsir nú eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi og Menntamálaráðuneytisins um menningarmál og verður byrjað að úthluta í lok febrúar fyrir árið 2004 og verður úthlutað um 20 milljónum. Þetta er í fjórða skiptið sem úthlutað er og á síðasta ári voru umsóknir 140 og var úthlutað til 88 verkefna, þar af 18 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Hæsti styrkur sem úthlutað er í hvert verkefni eru 2,5 milljónir.
Þeir sem geta sótt um eru einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Austurlandi til margvíslegra menningarverkefna, en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Áhersla við styrkveitingu 2004 er samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs. Sérstakt vægi fá verkefni sem miða að fjölgun starfa og aðkomu ungs fólks að listum og menningu. Nú er bara að hvetja alla sem hafa áhuga á að sækja um að setjast niður og senda inn umsókn sem þarf að berast Menningarráði í síðasta lagi 2.febrúar n.k.
Þess má geta að Signý Ormarsdóttir menningarfulltrúi verður á skrifstofu Menningarráðs í Nýheimum miðvikudaginn 21.janúar n.k. frá kl. 17-19 til viðtals fyrir þá sem vilja.
![Út á fjörum [Málverk: Benedikt Eymundsson]](/media/frettir2004/mid/Ut-a-fjorum-(BE).jpg)


