Aukning á útlánum á bókasafninu á Höfn
Stöðug aukning hefur verið á útlánum á bókasafninu á Höfn undanfarin ár. Á síðasta ári, sem er fyrsta heila árið sem safnið er starfrækt í Nýheimum, jukust útlán um 7% en frá árinu 1990 hefur útlánum fjölgað um 463% eða úr 5.721 útláni árið 1990 í 32.204 útlán árið 2003.
Mjög mikil aukning er einnig á annarri notkun bókasafnsins s.s. tölvunotkun, lesstofu og ljósritun og fjölmargir koma daglega til þess að lesa dagblöð og tímarit sem liggja þar frammi.
Hér að neðan er þróunin rakin ár frá ári.
1990 5.721
1991 7.489
1992 13.457
1993 16.264
1994 17.337
1995 17.477
1996 18.405
1997 19.002
1998 18.480
1999 18.373
2000 23.711
2001 28.147
2002 30.164
2003 32.204



