Menning

Listaverk á Breiðarmerkursandi

Umsóknarfrestur framlengdur - 28.01.2004 Menning

Menningarráð Austurlands hefur framlengt umsóknarfrest vegna verkefnastyrkja til menningarstarsemi á Austurlandi til 10. febrúar. Þetta er í fjórða skiptið sem úthlutað er og á síðasta ári voru umsóknir 140 og var úthlutað til 88 verkefna, þar af 18 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Hæsti styrkur sem úthlutað er í hvert verkefni eru 2,5 milljónir. Áhersla við styrkveitingu 2004 er samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs. Sérstakt vægi fá verkefni sem miða að fjölgun starfa og aðkomu ungs fólks að listum og menningu. Nú er bara að hvetja alla sem hafa áhuga á að sækja um að setjast niður og senda inn umsókn sem þarf að berast Menningarráði í síðasta lagi 10.febrúar n.k. Lesa meira
 
Blekbytta Þórbergs

Stefnt að opnun Þórbergsseturs 2005 - 22.01.2004 Menning

Stefnt er á að opna Þórbergs-setur á Hala í Suðursveit í júní 2005 og er undirbúningur kominn á skrið. María Gísladóttir hefur fengið skrifstofu í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum þar sem hún vinnur að söfnun gagna um Þórberg. Mitt hlutverk er að kortleggja æfi Þórbergs í tímabil segir María, hann fékkst við svo margt og hafði mörg mismunandi áhugamál. Ég er að finna gögn, myndir og texta jafnvel gömul bréf og tala við fólk sem hitti Þórberg man eftir honum og getur sagt frá því. Lesa meira
 
Út á fjörum  [Málverk: Benedikt Eymundsson]

Verkefnastyrkir til menningarstarfs - 15.01.2004 Menning

Menningarráð Austurlands auglýsir nú eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi og Menntamálaráðuneytisins um menningarmál og verður byrjað að úthluta í lok febrúar fyrir árið 2004 og verður úthlutað um 20 milljónum. Þetta er í fjórða skiptið sem úthlutað er og á síðasta ári voru umsóknir 140 og var úthlutað til 88 verkefna, þar af 18 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Hæsti styrkur sem úthlutað er í hvert verkefni eru 2,5 Milljónir. Lesa meira
 
Guðný Svavarsdóttir bókavörður

Aukning á útlánum á bókasafninu á Höfn - 08.01.2004 Menning

Stöðug aukning hefur verið á útlánum á bókasafninu á Höfn undanfarin ár. Á síðasta ári, sem er fyrsta heila árið sem safnið er starfrækt í Nýheimum, jukust útlán um 7% en frá árinu 1990 hefur útlánum fjölgað um 463% eða úr 5.721 útláni árið 1990 í 32.204 útlán árið 2003. Mjög mikil aukning er einnig á annarri notkun bókasafnsins s.s. tölvunotkun, lesstofu og ljósritun og fjölmargir koma daglega til þess að lesa dagblöð og tímarit sem liggja þar frammi. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica