Menning

Frá undirskriftinni í Nýheimum

Viðburðir Listhátíðar í Reykjavík verða einnig úti á landi - 09.12.2003 Menning

Samkomulag Listhátíðar í Reykjavík við Menningarráð Austurlands og Menningarmálanefnd Akureyrarbæjar sem undirritað var í Nýheimum á föstudaginn er mikilvægt skref í átt að nýrri samvinnu Listahátíðar í Reykjavík og landsbyggðarinnar. Er því ætlað að verða að föstum lið í framtíðinni, einkum eftir að ákveðið var að Listhátíð í Reykjavík yrði haldin árlega frá og með næstu hátíð. Viðræður eru í gangi við Byggðastofnun um aðkomu stofnunarinnar að þessari samvinnu. Lesa meira
 
Pakkhúsið séð frá bryggju

Bókmenntakvöld 10 ára - 03.12.2003 Menning

Hin árlega bókmenntasamkoma í desember á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar er nú haldin í 10. sinn. Á þessum samkomum hafa rithöfundar lesið úr nýútkomnum bókum sínum og saman við dagskrána hefur einnig verið fléttað tónlist. Á þessu tímabili hafa 55 rithöfundar sótt okkur heim að þeim sem nú koma meðtöldum. Það fer vel á því að einn höfundur sem kom með fyrsta hópnum sé nú aftur á ferð. Það er Vigdís Grímsdóttir, er kom hingað árið 1994 og las þá úr bókinni Kaldaljós en les nú úr bókinni Þegar stjarna hrapar. Kaldaljós er einnig á tímamótum því unnin hefur verið kvikmynd upp úr bókinni sem verður frumsýnd 1. janúar nk. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica