Menning

Ásdís Marteinsdóttir, bókavörður

Jöfn og sígandi aukning - 25.11.2003 Menning

Aðsókn að bókasafninu hér hefur vaxið í hverjum mánuði miðað við síðasta ár og voru útlán 1.nóvember sl. 26.194, en voru 24.685 1.nóv. á síðasta ári segir Gísli Sverrir Árnason forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Þetta hefur verið jöfn og sígandi aukning, börn og unglingar sækja mun meira í safnið en áður og teljum við það ekki síst því að þakka að í haust tókum við upp formlegt samstarf við grunnskólana hér á staðnum. Lesa meira
 
Ómar Guðjónsson og félagar

Útgáfutónleikar Ómars Guðjónssonar á Hótel Höfn - 24.11.2003 Menning

Ómar hefur nú þegar látið að sér kveða í íslensku jazzlífi og tók m.a þátt í nýliðinni jazzhátíð í Reykjavík. Nýverið gaf hann út sína fyrstu sólóplötu, Varma land, þar sem með honum leika bróðir hans, Óskar Guðjónsson á saxófóna, Þórður Högnason á bassa og Helgi Svavar Helgason á trommur. Á tónleikunum á Hótel Höfn mun hann kynna diskinn ásamt Óskari, Helga og Jóhanni Ásmundssyni sem mun spila á kontrabassa. Lesa meira
 
Hafið og norðrið

Í ljósaskiptunum – Hafið og Norðrið - 08.11.2003 Menning

Vikuna 10. - 16. nóvember er Norræn bókasafnsvika. Dagskrá vikunnar hefst á sama tíma í bókasöfnum á Norðurlöndunum með upplestri á sama texta. Í ljósaskiptunum, kl. 18:00, verða ljósin slökkt og á Höfn mun Elín Magnúsdóttir, forseti bæjarstjórnar, lesa upp við kertaljós líkt og á öðrum bókasöfnum. Textinn er úr inngangi bókarinnar Garman og Worse eftir norska rithöfundinn Alexander Kielland. Lesa meira
 
Hera

Stórtónleikar í Nýheimum - 06.11.2003 Menning

Mánudaginn 10. nóvember verða tónleikar í Nýheimum þar sem fram munu koma hljómsveitin Santiago, Hera og Geiri Harðar ásamt hornfirðingunum Védísi Ernu Eyjólfsdóttir og hljómsveitinni Parket. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og er aðgangseyrir kr. 1.000.- Tónleikarnir ganga undir nafninu “Órafmögnuð vegavinn” og eru á vegum European Roadworks Music sem eru Evrópusamtök sem vinna að því að efla kynningu á ungum söngvurum og lagahöfundum. Lesa meira
 
Hart barist

Jón Böðvarsson - Njála - 06.11.2003 Menning

Jón Böðvarsson, íslenskufræðingur, flytur erindi um Njálu í fyrirlestrarsal Nýheima, fimmtudagskvöldið 6. nóvember, kl. 20:30. Hann hefur fyllt hvert námskeiðið af öðru um þetta efni á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands. Jón er löngu kunnur af fyrirlestrum sínum um Njálu og leiðsögn um Njáluslóðir. Austur Skaftfellingum gefst hér kærkomið tækifæri til að rifja upp tengsl héraðsins við fornsögurnar og íhuga hvernig hægt sé að viðhalda þeim fróðleik m.a. í tengslum við ferðaþjónustuna. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica