Menning
Laufey Sigurðardóttir og Páll Eyjólfsson
Laufey Sigurðardóttir og Páll Eyjólfsson

30.10.2003

Ljúfir sunnudagstónleikar

Sunnudaginn 2. nóvember kl. 2 e.h. munu Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari og Páll Eyjólfsson, gítarleikari, koma fram á tónleikum í Nýheimum, Höfn í Hornafirði. Á tónleikunum leika þau m.a. lög eftir Sigfús Halldórsson, sem Páll hefur umritað fyrir fiðlu og gítar og einnig verður forvitnilegt að heyra píanóverk eftir Chopin útsett fyrir þessi hljóðfæri af Páli. Laufey og Páll hafa starfað saman frá árinu 1986. Þau hafa haldið tónleika víðs vegar um landið sem og erlendis og gert upptökur fyrir útvarp og sjónvarp.

Á efnisskrá þeirrra eru verk frá barokk-tímanum til okkar daga og íslensk tónskáld hafa samið verk fyrir þau sérstaklega. Árið 1996 kom út á vegum Skrefs geisladiskurinn “ Ítölsk tónlist “ með leik þeirra sem fékk sérstaklega góðar viðtökur hjá gagnrýnendum. Auk venjulegs tónleikahalds hafa Laufey og Páll staðið fyrir tónlistarkynningum í skólum víðs vegar um land. Aðgangseyrir á tónleikana er kr. 1.000.- en frítt fyrir grunnskólanema. Tónleikarnir eru styrktir af Félagi íslenskra tónlistarmanna.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica