Menning

Bókin Íslenskar konur

Kynning vikurnar Íslenskar konur, ævisögur - 28.09.2003 Menning

Í bókinni segja átján konur ævisögu sína, sumar nutu færðar og hylli, aðrar lifðu á jaðri samfélagsins. Allar hafa þær þó merka sögu að segja. Valdir eru bestu kaflarnir úr hverju verki og þeim raðað saman í heild sem gefur góða mynd af aðalpersónunni, samtíma hennar og lífsviðhorfi. Lesa meira
 
Bók vikunnar Vega línur

Kynning vikunnar Vegalínur - 21.09.2003 Menning

Vegalínur er frumraun Ara Trausta Guðmundssonar á sviði sagnagerðar og fyrir hana hlaut hann Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness 2002. Fólk og ferðalög eru meginviðfangsefni sagnanna tólf í bókinni sem eru einstaklega lifandi og myndrænar og fjalla allar um ferðalanga sem lenda í óvæntum aðstæðum á framandi slóðum. Lesa meira
 
Ryk

RYK, sýning Ingu Jónsdóttir - 11.09.2003 Menning

Laugardaginn 6. september var opnuð sýning Ingu Jónsdóttur í Listasafni ASÍ. Sýningin er í Ásmundarsal og Gryfju en sýningin ber nafnið RYK. Inga lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1989 og framhaldsnámi frá Academie der Bildenden Künste, í München 1992. Efni og hugmynd renna oft saman í eitt í verkum hennar sem byggja á hugmyndafræðilegum grunni. Lesa meira
 
Barist fyrir frelsinu

Kynning vikunnar Barist fyrir frelsinu - 07.09.2003 Menning

Barist fyrir frelsinu er áhrifamikil saga Guðríðar Örnu Ingólfsdóttur og Hebu Shahin og ævintýralegur flótti þeirra frá Egyptalandi, rituð af Birni Inga Hrafnssyni. Í bókinni segir frá ævintýralegum flótta mæðgnanna Guðríðar Örnu Ingólfsdóttur og Hebu Shahin frá egypskum föður Hebu, sem hafði kyrrsett hana í Egyptalandi og hugðist gifta hana að íslömskum sið. Lesa meira
 
Handan við regnbogann

Kynning vikunna Handan við regnbogann - 01.09.2003 Menning

Þessi skáldsaga Stefáns gerist að mestu leyti í Reykjavík. Þræðir sögunnar liggja til ýmissa átta en að stórum hluta er hún uppvaxtar- og ástarsaga ungs manns sem er á ellefta ári í upphafi síðari heimsstyrjaldar. Þrátt fyrir friðsælt upphaf sögunnar ná skuggar fortíðarinnar að hafa afgerandi áhrif á framvinduna. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica