Landsmót 2008
Landsmót Kvennakóra á Höfn 2008
7. Landsmót Kvennakóra verður haldið hér á Hornafirði dagana 25.-27. apríl 2008.
Við eldhressu konurnar í Kvennakór Hornafjarðar tókum að okkur fyrir þremur árum, á síðasta landsmóti að halda næsta landsmót.
Hingað koma um 330 konur seinnipart föstudagsins og eigi saman skemmtilega söng- og gleði helgi, sem endar á miðjum sunnudeginum, með stórtónleikum í íþróttahúsinu á Höfn kl. 14. Er aðgangur ókeypis og allir hvattir til að mæta á þennan stórviðburð.
Þar munu allir þátttakendur sameinast í einum kór, við undirleik hljómsveitar Jóhanns Morávek og verður þá meðal annars frumflutt sérstakt landsmótslag eftir tónskáldið Þóru Marteinsdóttur, sem okkar frábæri textahöfundur Guðbjartur Össurarson samdi texta við.
Einnig verða haldnir tónleikar í íþróttahúsinu á laugardeginum kl. 16, þar sem hver kór flytur eitt eða tvö lög af sinni dagskrá. Þar er einnig aðgangur ókeypis.
Á landsmótinu verða fjórir sérstakir vinnuhópar, sinn með hverju sniðinu, þar sem hver kona getur valið sér það sem hana langar að fást við og tvo til vara. Þessir hópar verða:
- Advanshópur, krefjandi verkefni
- Rythmiskurhópur, afrísk og suður-amerísk verk
- Dægurlagahópur, popp og gömul dægurlög
- Ethnískurhópur, austur-evrópsk þjóðlög allt frá Tyrklandi til Lapplands.
Hver hópur verður með tvö til fjögur lög að fást við og hver sinn stjórnanda og undirleikara, sem koma m.a. frá þeim kórum sem þátt taka í mótinu.
Hafi þeir bestu þakkir fyrir hve vel þeir tóku í þetta uppátæki okkar, en við erum að prófa þetta fyrirkomulag , sem ekki hefur áður verið á þessum mótum.
Skipulag mótsins hefur staðið lengi yfir, en meðal annars þá könnuðum við hve mörg gistirými við hefðum í boði hér á svæðinu, sem var nægjanlegt og eru nú öll gistirými full út af Hoffellsá. Í okkar skipulagi viljum við að landsmótsgestir geti einnig notið þess sem mest, er Hornafjörður hefur upp á að bjóða, sem er nú ekki svo lítið.
Því viljum við kynna mótið sem allra best fyrir heimamönnum, svo við getum öll staðið saman að frábærri helgi og sýnt þeim hve lukkuleg við erum að búa hér í okkar góða samfélagi með stórbrotna náttúrufegurð allt um kring.
Við stefnum á að halda glæsilegt og eftirminnilegt landsmót, svo landsmótsgesti langi til að koma hér aftur og lengur með sínar fjölskyldur.
Kvennakórinn stendur allur og heill að þessu skemmtilega verkefni og ekki væri nú verra ef að okkar "fyrrverandi kórfélagar" sláist í för með okkur þessa skemmtilegu sönghelgi og helst strax í dag elskurnar, við söknum ykkar.
Strax í upphafi var skipuð nefnd til undirbúnings þessu móti, sem í dag skipa þær: Ingibjörg, Lucia og Erna.
Við erum ávallt tilbúnar að svara spurningum, ef það er eitthvað sem menn vilja spyrja um varðandi þennan viðburð, þá endilega hafa samband við okkur.
Eins og sjá má hér á okkar frábæru heimasíðu og heimamenn vita manna best, þá höfum við stelpurnar í Kvennakórnum, tekið okkur ýmislegt fyrir hendur og nú sem fyrr reynir á hvers við erum megnugar . Það sem við gerum, leggjum við okkur allar í og nú höfum við undirbúið okkar frábæru maka og fengið í lið með okkur, til að standa sem best að þessum viðburði, enda eru þessir strákar bestir!!!
"Landsmótsnefndarkveðja"
Ingibjörg, Lucia og Erna



