Heimaskot
Rúllubrauð með Pestoblöndu
Rúllutertubrauð
1krukka.grænt pesto
½ gl svartar olivur (eða grænar) saxaðar
Sólþurrkaðir tómatar í olíu (eftir smekk ca.1/2gl) saxaðir
1 bréf Skinka (skorin í máa bita)
2 hvítlauksrif (má meira)saxað
1 kúla Mozzarella ostur skorin í bita
4 msk parmesanostur,rifinn
Pipar
3msk parmesanostur rifinn yfir
Olívurnar skornar í tvennt,tómatarnir skornir í ræmur,olían þerruð aðeins af.
Skinkan skorin smátt svo og hvítlaukurinn.
Allt sett í skál með pestoinu,hrært saman,líka aðeins af rifnum osti.
Smurt yfir brauðið,Mosarellan skorin í bita og sett ofan á.
Smyrja má með kransæðakítti utan á rúlluna og setja rifinn ost svo líti betur út.
Síðan sett í heitan ofninn og hitað vel í gegn.
Verði ykkur að góðu.
Ásgerður Haraldsdóttir


