Heimaskot

Humarréttur

Girnilegur

Humarhalar
2 ½ dl rjómi
2 tsk rósapipar (malaður)
¼ tsk fiskikraftur
¼ tsk sojasosa

Humarhalarnir léttsteiktir upp úr smjöri
og síðan teknir úr skelinni.
Rjóminn settur í pott ásamt kryddi og
sojasósu, sósan látin taka sig.
Ýmist er hægt að bera humarhalana fram
sér eða setja þá út í sósuna og þá er best
að setja þá út í rétt fyrir snæðing.

Borið fram með hrísgrjónum, grænmeti
og brauði að eigin vali.

Njótið vel.
Eyrún Axels.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica