Heimaskot

Túnfisklasagna

ca 9 lasagneplötur

Hvít sósa:
21/2 dl. rjómi eða kaffirjómi
100 gr. rifinn ostur
sósujafnari
salt, pipar
3 msk parmesanostur

Fylling:
300 gr. sveppir
smjör eða smjörlíki til steikingar
1 tsk sítrónusafi
tvær dósir túnfiskur í olíu
2 stórir tómatar
2 msk parmesanostur
50 gr. rifinn ostur

Aðferð:
1. Hita rjómann og bræða ostinn við vægan hita. Krydd og sósujafnari næst og að síðustu setja parmesanostinn út í.
2. Sneiða og steikja sveppi, dreypa sítrónusafa yfir. Skera tómata
3. 1/3 hluti af sósunni hellt í botn á eldfast mót, parmesanost yfir og lasagneplötur. Sósa yfir, sveppirnir og lasagneplötur. Allur túnfiskurinn settur næst, lasagneplötur. Afgangi af sósu hellt yfir, tómatarnir settir ofan á og að lokum rifinn ostur.

Verði ykkur að góðu, Erna Gísladóttir



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica