Heimaskot

Tómatsúpa með tímian og hvítlauk

Klikkar ekki

Setja í matvinnsluvél
2 dósir niðursoðnir tómatar (Hunt´s whole tom.)
ca. 170 gr. tómatpaste (ókryddað)

setja maukið í 2 l. af heitu vatni, sjóða saman við vægan hita í 1 klukkustund.

Hræra saman
Ólífuolia
1 msk. timian
2 tsk. svartur pipar (má setja meiri pipar)
1 heill hvítlaukur, rifin pressuð.

Timian, hvítlauks og piparblöndunni er bætt út í tómatlöginn eftir að hann hefur soðið í 1. klst., þá er 1 dl. mysu bætt út í , enn betra að setja hvítvín í stað mysunnar , þá er 1 stórum grænmetisteningi bætt út í, látið malla saman í 10-15 mín.

Tekið af hitanum og einum pela af rjóma bætt út í.

Þessi súpa er æðisleg með góðu salati, brauði og hvítvíni að sjálfsögðu.
Ef súpan á að vera matarmeiri þá er gríðargott að setja humar út í hana.


Verði ykkur að góðu.
Harpa Högnadóttir


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica