Heimaskot
Frönsk súkkulaðikaka
Uppskrift
200 gr.suðusúkkulaði
200 gr. smjör (íslenskt og feitt)
4 egg
2 dl sykur
1 dl hveiti
Suðusúkkulaði og smjör brætt saman í potti. Egg og sykri hrært saman í skál, síðan er smjörsúkkulaðiblöndu hellt útí og síðan hveiti. Bakað í 30 mín, 175 gráður (blástursofn) gætið að kakan verði ekki þurr. Notið springform.
Súkkulaðikrem
200 gr.suðusúkkulaði
70 gr.smjör
2 msk sýróp
Bræðið allt saman, kælið aðeins áður en sett er yfir kökuna. Gott að bera hana fram með rjóma eða ís og hindberjum.
Verði ykkur að góðu.
Ragnheiður Rafnsdóttir


