Undirleikari

Jónína Einarsdóttir

Undirleikari

Jónína Einarsdóttir, Ninna, hefur verið undirleikari hjá kvennakórnum frá upphafi að undanskildum tveimur árum. Hefur hún fylgt okkur í gegnum súrt og sætt alla tíð af mikilli þolinmæði og á hún hrós skilið fyrir það, svo er hún frábær píanóleikari.

Hún stundaði fyrst píanónám á Egilsstöðum og síðan í Tónskóla A-Skaft. Hún lærði einnig á fleiri hljóðfæri og hefur m.a. spilað í lúðrasveit og með harmonikufélagi. Árið 2006 lauk hún tónmenntakennaranámi frá KHÍ.

Jónína starfar nú sem aðstoðarskólastjóri Tónskóla A- Skaft. og er einnig undirleikari hjá Gleðigjöfum, kór aldraðra.

 

 

 

 

 

 

 

 




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica