Starfslög

Starfslög Kvennakórsins

Lög Kvennakórs Hornafjarðar

1. grein

Kórinn heitir Kvennakór Hornafjarðar. Félagssvæði hans er Suð-Austurland.

2. grein

Tilgangur kórsins er að æfa andlegan og veraldlegan söng, koma fram á tónleikum og við önnur tilefni.

3. grein

Kórinn skal stefna að því að halda minnst eina tónleika á ári á félagssvæði sínu, svo og efna til tónleikaferða í önnur héruð eftir því sem aðstæður leyfa að dómi kórstjóra og stjórnar.

4. grein

Allar konur geta orðið félagar svo fremi sem þær undirgangist þær skyldur við kórinn sem lög þessi kveða á um.

5. grein

Kórfélögum er skylt að mæta stundvíslega á allar æfingar, svo framarlega sem ekki hamla óviðráðanlegar orsakir.

6. grein

Kórfélagar skulu greiða félagsgjöld sem ákveðin eru á hverju starfsári. Félagsgjöldin eru innheimt tvisvar á hverju starfsári í byrjun hvorrar annar.

7. grein

Stjórn kórsins skal kosin á aðalfundi hans ár hvert og vera skipuð þremur konum, formanni, ritara og gjaldkera auk tveggja varamanna. Skulu minnst tvær úr fráfarandi stjórn sitja áfram í nýrri stjórn.

8. grein

Hver rödd kórsins skal kjósa sér formann til eins árs í senn. Verksvið hans er að tilkynna æfingar, bera ábyrgð á mætingarlistum sinnar raddar og koma óskum raddar sinnar til stjórnar og kórstjóra.

9. grein

Aðalfund kórsins skal halda í september ár hvert. Stjórn skal boða til hans með minnst tveggja sólarhringa fyrirvara og telst hann þá löglegur. Starfsár/reikningsár kórsins er frá 1. september til 31. ágúst. Á aðalfundi skal stjórnin gera grein fyrir störfum sínum og reikningum kórsins.

10. grein

Kosið skal á aðalfundi kórsins í lagavalsnefnd og fjáröflunarnefnd fyrir starfsárið. a) Í lagavalsnefnd sitja kórstjóri ásamt einni konu úr hverri rödd. Hlutverk nefndarinnar er að ákveða sönglagaval starfsársins og að sjá um gerð söngskrár. b) Í fjáröflunarnefnd skulu kosnar fjórar konur. Hlutverk hennar eða að leita fjáraflana fyrir kórinn og sjá um framkvæmd þeirra.

11. grein

Stjórn kórsins ræður kórstjóra og undirleikara.

12. grein

Breytingar á lögum þessum má aðeins gera á aðalfundi og ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum.

 

 




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica